Um kennarastarfið og fjölbreytni

Fréttir|20. október 2021
Pistill

Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, kennari í Borgarholtsskóla og frambjóðandi til formanns Kennarasambands Íslands, skrifar.

Það er ólíðandi hversu hægt gengur að manna leik- og grunnskóla með fagfólki. Það er lítilsvirðing við fagmenntun okkar og það er lítilsvirðing við nemendur sem eiga skilið að fá þjónustu sérfræðinga í menntun í skólunum sínum.

Kjaramál eru vitaskuld stór áhrifaþáttur. Kennarastéttin er kvennastétt og kvennastéttir eru vanmetnar til launa. Við þurfum að endurskilgreina verðmætamat samfélagsins. Ég er viss um að ef við spyrðum hóp foreldra hvað væri það mikilvægasta í þeirra lífi, myndu flest svara að börnin þeirra og heilsa væri það sem mestu máli skipti. Af hverju þykir það bara gott og gilt að sérfræðingarnir sem sjá um það sem okkur þykir mikilvægast séu vantmetnir til launa?

Kennarastéttin er kvennastétt og kvennastéttir eru vanmetnar til launa.

En áhrifin eru ekki bara ósanngirni gagnvart núverandi kennurum. Setjum þetta í aðeins víðara samhengi. Láglaunastefnan og gamaldags staðalmyndir tvinnast saman í vítahring sem viðheldur því að einsleitur hópur fólks sæki í stéttina og kemur í veg fyrir að hún endurspegli þá fjölbreyttu flóru fólks sem samfélagið samanstendur af.

Skólakerfið er stór hluti af samfélaginu, endurspeglar það og mótar á sama tíma. Menntakerfið er stærsti félagsmótunaraðili hvers nemanda ef frá er talin fjölskyldan. Áhrif skólagöngunnar verða aldrei ofmetin og því þarf að huga vel að því hvaða fyrirmyndir blasa við nemendum í öllum þeim skólastofum sem þau sækja.

Kennarastéttin þarf að innihalda jafn fjölbreytta flóru fólks og samfélagið. Þverskurður þess á að endurspeglast í skólakerfinu. Allir nemendur ættu að geta speglað sig í kennarastéttinni og fjölbreytt kennarastétt er best til þess fallin að mæta fjölbreyttum þörfum ólíkra nemenda.

Skólakerfið er stór hluti af samfélaginu, endurspeglar það og mótar á sama tíma.

Kennarastarfið ætti að trekkja til sín, ekki bara fleiri karla, heldur alla flóru fólks. Nemendur af öllum kynjum,  fatlaðir nemendur, hinsegin nemendur, nemendur með erlendan bakgrunn, nemendur með ólíka húðliti og nemendur sem aðyllast ólík trúarbrögð eiga að geta reitt sig á fyrsta flokks menntun á öllum skólastigum sem tekur mið af reynslu, þörfum og vilja þeirra allra. Þannig verður gott skólastarf enn gróskumeira.

Þetta er hvatning til allskonar fólks að sækja kennaranám, því það er besta og mikilvægasta starf í heimi.

 

Hanna Björg Vilhjálmsdóttir er frambjóðandi til formanns Kennarasambands Íslands.