Um fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir

Yfirgnæfandi meirihluti félagsfólks KÍ í þeim níu skólum sem þar sem verkfallsaðgerðir eru ráðgerðar 29. október greiddu atkvæði með aðgerðum. Hér er hægt að kynna sér framkvæmdina.
Allir félagsmenn í FG, FL, FT og SÍ, eða 100%, sögðu já við boðun verkfalls. Um er að ræða félagsmenn í fjórum leikskólum, þremur grunnskólum og einum tónlistarskóla. Mikill og skýr stuðningur er jafnframt við boðun verkfalls meðal félagsmanna FF og FS í Fjölbrautaskóla Suðurlands, en þar sögðu 81% já við boðun verkfalls.
Boðun verkfalla í fyrrnefndum níu skólum liggur því fyrir og hefjast þau 29. október næstkomandi, hafi kjarasamningar ekki náðst. Verkföll leikskólanna verða ótímabundin, önnur tímabundin.
Aðgerðirnar
Leikskólinn: Verkföll í leikskólum eru ótímabundin, áformað er að þau hefjist í eftirtöldum skólum 29. október:
- Leikskóli Seltjarnarness
- Leikskólinn Holt í Reykjanesbæ
- Leikskólinn Drafnarsteinn í Reykjavík
- Leikskólinn Ársalir á Sauðárkróki
Grunnskólinn: Aðgerðir í grunnskólanum eru tímabundnar, skella á 29. október og standa til 22. nóvember. Verkföll eru fyrirhuguð í eftirtöldum skólum:
- Áslandsskóli í Hafnarfirði
- Laugalækjarskóli í Reykjavík
- Lundarskóli á Akureyri
Framhaldsskólinn: Fyrirhugað verkfall við Fjölbrautaskóla Suðurlands verða tímabundin, standa frá 29. október og til 20. desember. Einnig er vert að taka fram að annar framhaldsskóli undirbýr nú aðgerðir.
Tónlistarskólinn: Áformað er að fyrirhugað verkfall við Tónlistarskóla Ísafjarðar verði tímabundið, hefjist 29. október og standi til 20. desember.