Um fjórðungur hefur greitt atkvæði

Fréttir|29. ágúst 2023

Atkvæðagreiðsla hjá FSL og SÍ um nýja kjarasamninga fer ágætlega af stað. Þátttakan er ívið betri hjá FSL.

Alls höfðu 28,61 prósent félagsmanna í Félagi stjórnenda leikskóla (FSL) greitt atkvæði um nýjan kjarasamning félagsins á hádegi í dag. Atkvæðagreiðslan hófst klukkan 12:00 í gær. Hjá Skólastjórafélaginu var staðan sú á hádegi að 24,53 prósent félagsmanna höfðu greitt atkvæði. 

FSL og SÍ skrifuðu hvort um sig undir kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga 18. ágúst síðastliðinn. Gildistími samninganna er 1. október 2023 til 31. maí 2024. 

Atkvæðagreiðsla stendur yfir til klukkan 12 á föstudag og eru félagsmenn félaganna hvattir til að taka þátt. Kosning fer fram á Mínum síðum á vef KÍ.