Um 350 skólastjórnendur ræddu faglega forystu, starfsumhverfi og gervigreind

Fréttir|11. október 2024

Starfsumhverfi skólastjórnenda í grunnskólum, menntun á tímum gervigreindar og leiðtogahæfni eru viðfangsefni árlegrar námstefnu Skólastjórafélags Íslands.

Um 350 skólastjórnendur sátu námstefnu Skólastjórafélagsins sem fram fór í Íþróttahöllinni á Akureyri í dag. Námstefna Skólastjórafélagsins er árlegur viðburður og jafnan mjög vel sótt.

Málefni námstefnunnar eru mikilvæg en fyrir hádegi var rýnt í niðurstöður viðhorfskönnunar sem Kennarasamband Íslands lét gera meðal allra félagsmanna KÍ seint á síðasta ári.

Ráða vel við álag í starfi

Sigríður Indriðadóttir stjórnendaráðgjafi leiddi umræðuna og var starfsumhverfi skólastjórnenda rætt frá ýmsum sjónarhornum.

Könnunin leiddi meðal annars í ljós að skólastjórnendur töldu sig ráða mjög vel, eða frekar vel, við álag í starfi, eða 79 prósent svarenda. Þá sýndu niðurstöður að því eldri sem svarendur voru því líklegri voru þeir til að ráða mjög eða frekar vel við álag í starfi, það átti það bæði við starfsaldur og lífaldur. Spurðir um hvað ylli þeim mestu álagi í starfi svöruðu stjórnendur að helst væru það annars vegar mannauðsmál og málefni tengd starfsfólki, og hins vegar umfang starfsins. 

Af öllum þátttakendum könnunarinnar töldu þó félagsmenn Skólastjórafélagsins sig ólíklegasta til að gegna sama starfi eftir fimm ár, eða aðeins 49 prósent, miðað við til dæmis 71 prósent félagsmanna í Félagi framhaldsskólakennara. Hér má þó taka fram að munur var á svörum út frá bæði líf- og starfsaldri þar sem yngstu og elstu svarendurnir voru ólíklegri að svara því að þeim þætti mjög eða frekar líklegt að vera enn í sama starfi eftir fimm ár.

Menntun í sítengdum heimi

Gestafyrirlesari námstefnunnar var dr. Boris Jokic,  sálfræðingur frá Zagreb í Króatíu. Heiti erindis Jokic er Að slá á aðra trommu; Getur menntun á tímum gervigreindar, skautunar og sinnulausra nemenda orðið viðeigandi aftur?

Jokic hefur helst einblínt á menntunarsálfræði í sínum störfum. Nýjustu rannsóknir hans beinast að áhrifum heimsfaraldurs á væntingar og vonir barna og ungmenna, nám þeirra og traust. Hann var meðlimur í menntamálaráði Króatíu og er einn af höfundum núverandi menntastefnu landsins ásamt því að vera leiðandi í námskrárumbótum á leik- grunn- og framhaldsskólastigi. Hugmyndirnar, ferlið og gildin sem fólust í umbótunum leiddu til fjölda stuðningsmótmæla um allt landið.

Mikilvægar fyrirmyndir

Annar gestafyrirlesari steig í pontu að loknu erindi Jokic. Það var Eliza Reid, rithöfundur og fyrrverandi forsetafrú. Eliza sagði frá bók sinni Sprökkum sem fjallar um íslenskar kjarnakonur. Lýsti hún hvernig þær hafa sett mark sitt á samfélagið og hvernig þær geta verið mikilvægar fyrirmyndir. Þá fór Eliza yfir reynslu sína sem maki forseta og hvatti hún viðstadda til að gera sem mest úr óvæntum tækifærum, „því öll getum við verið góðar fyrirmyndir,“ sagði Eliza.

Félagsfólk Skólastjórafélagsins lét sér ekki duga einn dag til námstefnu því boðið er upp á dagskrá á morgun, laugardag. Þá verða málefni leiðtoga rædd, svo sem valdeflandi stjórnun og brestir liðsheilda, hvernig hægt er að efla orðstír skólans, halda orku og innri hvata þrátt fyrir álag í starfi.