Um 140 félagar í FSL á námstefnu

Um 140 gestir sátu vel heppnaða námstefnu Félags stjórnenda leikskóla í Iðnó í gær undir yfirskriftinni „Leiðtogahlutverkið, samskipti og vellíðan“.
Húsfyllir var í Iðnó í gær á vel heppnaðri námstefnu Félags stjórnenda í leikskólum undir yfirskriftinni „Leiðtogahlutverkið, samskipti og vellíðan“. Að þessu sinni var sjónum var beint að stjórnendanum sjálfum, leiðtogahlutverkinu, samskiptum og mikilvægi þess að byggja upp jákvæða og heilbrigða vinnustaðamenningu.
„Stjórnendur leikskóla gegna fjölbreyttu og krefjandi hlutverki þar sem reynir daglega á leiðtogahæfni, samskipti og mannauðsstjórnun. Með vali á viðfangsefnum ársins viljum við skapa vettvang þar sem stjórnendur fá tækifæri til að staldra við, ræða sameiginlegar áskoranir, efla faglega hæfni sína og sækja styrk hver til annars,“ segir Sigurður Sigurjónsson, formaður FSL.
Fyrri hluti dagsins var helgaður vinnustofum undir leiðsögn Auka, mannauðs- og stjórnendaráðgjafar. Eftir hádegishlé var öllu léttara yfirbragð þar sem áherslan var lögð á húmor, lífsgleði, núvitund og vellíðan. Sigurður var ánægður eftir daginn. „Námstefnan tókst í alla staði vel og allir ánægðir með hvernig til tókst, bæði þátttakendur og fyrirlesarar.“