Um 14 prósent höfðu kosið í varaformannskjöri á hádegi
Fréttir|8. desember 2021

Kjör varaformanns Kennarasambandsins hófst á mánudag og stendur til næsta mánudags.
Þátttaka í varaformannskjöri KÍ var 14,10% klukkan tólf í dag. Kosningin hófst á hádegi á mánudag.
Kosningu lýkur klukkan 14 næstkomandi mánudag, 13. desember.
Frambjóðendur í stafrófsröð
- Guðný Maja Riba, grunnskólakennari í Breiðholtsskóla
- Hjördís B. Gestsdóttir, náms- og starfsráðgjafi í Langholtsskóla
- Jónína Hauksdóttir, skólastjóri leikskólans Naustatjarnar
- Kristín Björnsdóttir, grunnskólakennari í Sunnulækjarskóla
- Lára Guðrún Agnarsdóttir, grunnskólakennari í Austurbæjarskóla
- Silja Kristjánsdóttir, grunnskólakennari í Sjálandsskóla
- Simon Cramer Larsen, framhaldsskólakennari í Fjölbrautaskóla Suðurnesja
- Þórunn Sif Böðvarsdóttir, grunnskólakennari í Laugalækjarskóla
Um atkvæðagreiðsluna
Atkvæðagreiðslan fer fram á vef KÍ. Hlekkur inn á kosninguna er efst til hægri á forsíðu www.ki.is.
- Smelltu á hnappinn KJÓSA
- Skráðu þig inn með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum.
- Merktu við þann frambjóðanda sem þú vilt kjósa sem varaformann KÍ eða Skila auðu.
- Smelltu á hnappinn KJÓSA og þá birtist gluggi þar sem þú ert beðin/n um að staðfesta atkvæði þitt.
- Að lokum kemur staðfesting á því að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
- Skiptir þú um skoðun, getur þú kosið aftur. Með því að kjósa aftur ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
- Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Aftur í kjörseðil.
Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is sími: 595 1111.