Tvö hús á Spáni í boði fyrir félagsmenn

Fréttir|5. febrúar 2015

Orlofssjóður KÍ býður félagsmönnum að leigja tvö hús í nágrenni Alicante á Spáni. Annað húsið verður í boðið frá lokum þessa mánaðar en hitt frá og með vordögum. 

Annars vegar er um að ræða 60 fermetra hús í Ciudad Quesada sem er um 40 kílómetra frá flugvellinum í Alicante. Sex manns geta gist í húsinu sem er ágætlega staðsett; matvöruverslanir og veitingastaðir eru næsta nágrenni. Stór verslunarmiðstöð er í um hálftíma akstursfjarlægð, Marquesa-golfvöllurinn er í fimm mínútna fjarlægð og það tekur aðeins um tíu mínútur að aka á góða strönd. Leigutímabil er frá 28. febrúar til 1. ágúst 2015. 

Hitt húsið er raðhús í Urbanizacion La Marina, í þorpinu San Fulcensio, sem er í 27 kílómetra fjarlægð frá Alicante. Verslanir og veitingahús eru í nágrenninu og stór sundlaug í fimm mínútna göngufæri. Góðir golfvellir eru á svæðinu og er eitt golfsett til afnota fyrir félagsmenn í húsinu. Leigutímbil er frá 29. maí til 21. ágúst 2015.

Allar nánari upplýsingar um þessa nýju og áhugaverðu orlofskosti á Spáni er að finna á Orlofsvef KÍ.