Tveir kjarasamningar samþykktir

Fréttir|25. september 2014

Kjarasamningur Félags leikskólakennara og Samtaka sjálfstæðra skóla (SSSK) hefur verið samþykktur í allsherjaratkvæðagreiðslu. Þá hefur kjarasamningur Félag leikskólakennara og Sigöldu ehf. einnig verið samþykktur. 

Samningurinn við SSSK er samhljóða nýgerðum kjarasamningi FL við Samband íslenskra sveitarfélaga og nær til fjörtíu og eins sjálfstætt starfandi leikskóla. Samningurinn var undirritaður 5. september síðastliðinn. 

Atkvæðagreiðslan stóð yfir dagana 19. til 25. september – henni lauk klukkan 12 í dag. 

Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar er þessi:

  • Á kjörskrá voru 223
  • Atkvæði greiddu 61 eða 27,4%
  • Já sögðu 41 eða 67,3%
  • Nei sögðu 19 eða 31,1%
  • Auðir 1 eða 1,6%

Atkvæðagreiðsla um samning FL og Sigöldu ehf. hófst í gær og lauk á hádegi í dag. Skrifað var undir samninginn í fyrradag. Sigalda ehf. rekur leikskólann Aðalþing í Kópavogi. 

Niðurstaða atkvæðagreiðslunanr er þessi:

  • Á kjörskrá voru 16
  • Atkvæði greiddu 13 eða 81,3%
  • Já sögðu 12 eða 92,3%
  • Nei sögðu 1 eða 7,7%
  • Auðir 0 eða 0%