Tveir frambjóðendur til varaformanns KÍ
Fréttir|16. janúar 2014
Tveir hafa gefið kost á sér í embætti varaformanns KÍ, en framboðsfrestur rann út á miðnætti. Frambjóðendurnir eru Aðalheiður Steingrímsdóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, og Björg Bjarnadóttir, núverandi varaformaður Kennarasambandsins. Kosið verður á milli þeirra í almennri kosningu félagsmanna og skal henni lokið eigi síðar en 19. febrúar næstkomandi.
Björg hefur gegnt embætti varaformanns KÍ frá árinu 2011. Aðalheiður hefur verið formaður Félags framhaldsskólakennara frá 2005 en hún lætur af því starfi á aðalfundi FF í mars næstkomandi.
Frambjóðendurnir verða kynntir í miðlum Kennarasambandsins á næstunni.