Tungumál eru lykill að heiminum

Fréttir|20. apríl 2021

Hólmfríður Garðarsdóttir, prófessor í spænsku við Hugvísindasvið Háskóla Íslands hefur helgað líf sitt tungumálanámi og kennslu. Hólmfríður tók við formennsku í Samtökum tungumálakennara (STÍL) árið 2019.

Spænska er annað tungumál Hólmfríðar og hefur verið frá því hún var ung kona. Við byrjum á að spyrja hvað varð til þess að Hólmfríður fór þessa leið.

„Það má segja að þetta ævintýri hafi byrjað þegar ég fór ung að árum sem sjálfboðaliði til Rómönsku Ameríku, nánar tiltekið til Kostaríku. Ég dvaldi þar í tæp þrjú ár og kom heim altalandi á spænsku. Eftir heimkomu hóf ég nám í öldungadeild MH og svo í HÍ til að sækja mér formlega menntun í spænskunni,“ segir Hólmfríður.

Þegar kom að því að taka síðasta árið í háskólanum valdi Hólmfríður að fara til Argentínu, eða eins og langt í burtu og mögulegt var, til að bæta við þekkingu sína og reynslu. Dvölin í Argentínu dróst á langinn.

„Þetta var á níunda áratug síðustu aldar og eftir á áttaði ég mig á að ég hafði lifað mikla umbrotatíma, bæði í Kostaríku og Argentínu. Í Mið-Ameríku var byltingunni í Níkaragva nýlokið og andspyrnuöflin, voru af mikilli einurð að reyna að brjóta ný yfirvöld á bak aftur og borgarastyrjaldir geisuðu í nágrannalöndunum El Salvador og Gvatemala. Staðan í Argentínu var líka söguleg, herforingjastjórninni hafði verið steypt af stóli og ástandið í landinu var mjög ótryggt. Mótmælafundir voru daglegt brauð, tilraunir til valdaráns voru gerðar, háskólanum lokað og táragasi jafnvel hent inn í kennslustofur skólans,“ segir

Hólmfríður og bætir við að þessi lífsreynsla hafi síðar hjálpað sér mjög við að skilja bókmenntir Rómönsku Ameríku á seinni hluta 20. aldar.

„Bókmenntir urðu fljótlega mitt sérsvið og það að hafa verið á staðnum, hlustað á fólk og heyrt ótal mismunandi sjónarhorn varð styrkur þegar kom að því að skilja og miðla bókmenntum og menningu álfunnar.“

Þegar Hólmfríður sneri heim frá Argentínu lauk hún BA-prófi frá HÍ og bætti síðan við sig kennsluréttindum. Hún fór að kenna spænsku í Menntaskólanum við Hamrahlíð auk þess að vinna hjá spænska ræðismanninum hér á landi. Á þessum árum var starfsemi STÍL orðin að veruleika, en samtökin voru stofnuð árið 1985. Hólmfríður tók á þessum árum þátt í því að koma félagi spænskukennara á laggirnar.

Spænskunni óx ásmegin og það var hugur í kennurum auk þess sem menningarstarfsemi ýmiss konar blómstraði.

Tungumálanám er öllum hollt og óendanleg auðlind þekkingar og visku fyrir hvern og einn.

Fáeinum árum síðar skipti Hólmfríður aftur um gír og skráði sig í meistaranám við háskólann í Austin í Texas. Hún hlaut Fulbright-styrk til námsins og þar sem hún hafði þegar lokið kennsluréttindanámi var henni boðin 50% kennarastaða við háskólann. Þar kenndi hún spænsku sem annað mál. „Þetta gekk allt upp en úti var gerð krafa um að ég sinnti 50% kennslu og fullu námi. Þarna lærði ég spænskuna með öðrum hætti því Bandaríkjamenn þurfa að takast á við önnur atriði tungumálsins en Íslendingar. Námsárin í Texas urðu fimm og voru bæði lærdómsrík og ánægjuleg.“ Hólmfríður lauk bæði meistara- og doktorsprófi vestanhafs og lokaverkefni hennar fjallaði um bókmenntaverk argentínskra kvenna við árþúsundamót og mótun sjálfsmynda.

Fyrstu skrefin í spænskukennslu

„Ég hóf að kenna spænsku við Námsflokka Reykjavíkur og síðar við MH. Til að byrja með stóð spænskunám og kennsla á brauðfótum enda var þetta tiltölulega ný námsgrein hér á landi. Spænskan var að ryðja sér rúms við hlið þýsku og frönsku sem þriðja tungumál í menntaskólum landsins. Spænskan varð fljótt vinsæl og á upphafsárunum vantaði menntað fólk til að kenna tungumálið. Það þurfti því að hafa uppi á þeim sem kunnu spænsku og efna til námskeiða með það að markmiði að setja saman hóp spænskukennara. Í kjölfarið fóru margir í spænskunám, sóttu sér menntun hérlendis og í spænskumælandi löndum. Vinsældir spænskunnar ruku upp á tíunda áratug síðustu aldar og héldust í ein tuttugu ár,“ segir Hólmfríður.

Ástæður þess að spænskan náði svo miklum vinsældum segir Hólmfríður vera tvíþættar. Í fyrsta lagi eigi Íslendingar frekar auðvelt með framburð tungumálsins, enda sérhljóðakerfin sambærileg. „Ef nemandi er fljótur að ná góðum tökum á framburði þá vex honum ásmegin í náminu,“ segir Hólmfríður.

Hitt sem Hómfríður telur að skipti máli í þessu sambandi var aukin alþjóðavæðing í menningu og listum. Þetta kom fram í auknu framboði af tónlist, sjónvarpsþáttum og kvikmyndum á spænsku. Margar kvikmyndir frá Spáni og Rómönsku Ameríku náðu vinsældum á þessum tíma, til dæmis kvikmyndir Pedro Almodóvars. „Þessi nýja menningarframleiðsla frá hinum spænskumælandi heimi barst hingað og kveikti bæði áhuga og forvitni margra.“ Að auki ferðaðist fólk víðar og fólki frá Rómönsku Ameríku hafði til dæmis fjölgað mjög í Bandaríkjunum og myndaði minnihlutahóp sem varð sífellt sýnilegri í bandarísku samfélagi og afþreyingarefni þaðan.

Ef nemandi er fljótur að ná góðum tökum á framburði þá vex honum ásmegin í náminu.

Spænskan nýtur enn mikilla vinsælda sem þriðja mál á framhaldsskólastigi, ásamt frönsku og þýsku, en ögn hefur dregið úr aðsókn í spænsku á háskólastigi þessi síðustu ár – ef til vill vegna styttingar framhaldsskólans.“

Sameiginlegur vettvangur ­fagmennsku

Talið berst að STÍL, samtökunum sem Hólmfríður leiðir um þessar mundir. Í STÍL koma saman fagfélög tungumálakennara og þar er unnið margs konar faglegt starf en félagið stendur m.a. fyrir námskeiðum, vinnustofum og ráðstefnum auk þess að sinna alþjóðlegu samstarfi. „Strax á fyrstu árum mínum við spænskukennslu varð mér ljóst hve mikilvæg fagfélög kennara eru. Á upphafsárunum var t.d. ekki mikið til af námsefni sem hentaði íslenskum nemendum og þess vegna var svo mikilvægt að kennarar skiptust á efni og deildu sérþekkingu, hugmyndum og reynslu. Sama á við enn þann dag í dag að þegar nýr kennari hefur störf þá bendum við honum/henni á heima- og Facebook-síður félaganna þar sem hann/hún getur nálgast umræður um fagið og þannig verður vinnuumhverfi viðkomandi fjölbreyttara og skilar sér í meiri gæðum fyrir nemendur. Sumir kennarar eru kannski góðir í málvísindum og aðrir í bókmenntum eða menningarlæsi en á síðum fagfélaganna þá leggst þetta allt saman,“ segir Hólmfríður.

Talið er að á landinu starfi á milli 600 og 700 tungumálakennarar, flestir í ensku og dönsku, en um fjörutíu spænskukennarar eru starfandi víða um land og flestir eru þeir í Félagi spænskukennara og þar með STÍL.

Aldrei of seint að læra

Hólmfríður er sem fyrr segir prófessor við HÍ og segir hún að á bilinu 700 til 900 manns stundi tungumálanám á hverjum tíma. Aldursbil nemenda sem stunda háskólanám í tungumálum er mjög breitt og alltaf eru þó nokkrir erlendir nemendur og eldri borgarar í hópnum. „Það er mjög skemmtilegt að hafa þessa breidd því sá sem er sjötugur hefur aðra nálgun en nemandi um tvítugt. Það er aldrei of seint að hefja tungumálanám og þeir sem eldri eru búa yfir hæfileika til að tengja námið við eigin reynslu og þekkingu,“ segir Hólmfríður.

En það eru fleiri tungumál sem vekja áhuga ungs fólks nú til dags og tekur Hólmfríður dæmi um aðsókn í japönsku, kínversku og arabísku við HÍ. Auk þess sem nú er hægt að leggja fyrir sig nám í pólsku og hindí við Tungumálamiðstöð HÍ.

Hólmfríður tekur fram að þótt það sé ekki endilega gríðarlegur fjöldi sem skrái sig í öll þessi tungumál þá sé þarna á ferðinni fólk sem er forvitið og hefur löngun til að skilja samtíma sinn og umhverfi betur.

„Við höfum fjallað um þessar áskoranir innan vébanda STÍL. Því þegar kemur að tungumálanámi og kennslu eiga sömu spurningarnar alltaf við, þ.e. hvernig er hægt að bjóða bestu mögulega kennslu fyrir nemendahópa hverrar kynslóðar? Og þótt spurningin sé einatt sú sama þá þarf stöðugt að endurmeta aðstæðurnar því hóparnir breytast og einnig þau tæki og tól sem nýtast í kennslunni.“

Stytting framhaldsskólans er áhyggjuefni að mati Hólmfríðar. „Það að stytta námið um eitt ár hefur komið niður á tungumálanámi rétt eins og ýmsu öðru, eins og námi í listgreinum og íþróttaiðkun. Nú hafa nemendur ekki tíma í slíkt nám ef þau ætla að standa sína plikt í framhaldsskólanum. Eitt ár í lífi ungmennis á aldrinum 16 til 20 ára er nefnilega heil eilífð. Styttingunni fylgir fórnarkostnaður sem við erum enn að átta okkur á. Til að mynda hefur þurft að aðlaga ýmsar námsleiðir á háskólastigi, til dæmis tungumálanámið við HÍ. Þar hafa námsleiðir þriðju málanna, frönsku, spænsku og þýsku, þurft að hnika sig nær unglingunum þegar kemur að námsefni, jafnvel þótt stökkið úr framhaldsskóla í háskólana reynist enn erfitt fyrir mörg þeirra. Grunnstef tungumálanáms er endurtekning því það er ekki hægt að læra tungumál í eitt skipti fyrir öll. Það þarf að skoða jafnt málfræði og orðaforða í samhengi og svo í nýju samhengi og svo enn aftur í enn öðru samhengi. Það segir sig sjálft að ef nemandi hefur heilu ári skemur til að vera í þeirri rúllettu sem endurtekningin er þá hefur það áhrif.“

Fjöltyngið er fjársjóður

Hólmfríður leggur áherslu á að einn stærsti fjársjóður þjóðarinnar felist í því að við erum fjöltyngd. „Þótt oft sé kvartað yfir ýmsu og jafnvel áhugaleysi á tungumálum þá erum við fjöltyngd þjóð. Hér er skólaskylda og flestir læra dönsku og ensku í grunnskóla. Í kjölfarið bætum við fjórða málinu við í framhaldsskóla, því íslenskan telst auðvitað með. Tungumálanám er þroskandi, það opnar augu okkar fyrir því að ekkert er svart og hvítt heldur afstætt. Merking getur verið margþætt, óræð og það hjálpar okkur að víkka sjóndeildarhringinn. Auðvitað nýtur enskan sérstöðu sem helgast af því að sístækkandi flóra fjölmiðla er á ensku. Ungmenni búa við síbylju enskunnar sem skýrir hversu góðu valdi mörg þeirra ná á þeirri tungu.“

Hólmfríður tekur fram að hún hafi ekkert á móti því að allir verði frábærlega góðir í ensku. Það sé hins vegar ekki nóg í þeim heimi sem við búum í. „Tungumálanám er öllum hollt og óendanleg auðlind þekkingar og visku fyrir hvern og einn. Að halda mikilvægi tungumála á lofti er málstaður sem mér finnst þess virði að berjast fyrir og þess vegna hef ég ánægju af því að tileinka krafta mína starfsemi STÍL.“

 

Viðtalið við Hólmfríði birtist í Skólavörðunni, 1. tbl. 2021.