Trúnaðarmenn lýsa þungum áhyggjum af pattstöðu í kjaradeilu

Trúnaðarmenn Félags framhaldsskólakennara eru sammála um að hefja skuli undirbúning ótímabundinna verkfalla í framhaldsskólum í næsta mánuði.
Ríflega fjörutíu trúnaðarmenn í Félagi framhaldsskólakennara (FF) komu saman til fundar í húsakynnum Kennarasambandsins í dag. Á fundinum fór formaður FF, Guðjón Hreinn Hauksson, yfir gang mála í kjaradeilu KÍ og samninganefnda ríkis og sveitarfélaga.
Fundurinn sendi frá sér ályktun þar sem lýst er þungum áhyggjum af þeirri pattstöðu sem uppi er í kjaradeilunni. Fundurinn tók jafnframt undir þá almennu kröfu Kennarasambandsins um að staðið verði við samkomulagið frá 2016 um að laun milli markaða verði jöfnuð.
Þá var samþykkt samhljóða að hefja skuli undirbúning ótímabundinna verkfalla í ákveðnum fjölda framhaldsskóla í næsta mánuði. Efnt verði til atkvæðagreiðslna þegar friðarskyldu lýkur um mánaðamótin hafi samningar ekki náðst fyrir þann tíma.
Baráttuandi og einörð samstaða einkenndi fundinn.
Ályktunin í heild
Fundur trúnaðarmanna í framhaldsskólum og samninganefndar Félags framhaldsskólakennara lýsir þungum áhyggjum af algerri pattstöðu í kjaradeilu Kennarasambands Íslands við samninganefndir ríkisins og sveitarfélaganna. Krafa alls félagsfólks KÍ er að kjarasamningar inniberi skuldbindingu launagreiðenda um að staðið verði við samkomulag sem undirritað var í september 2016. Samkvæmt því voru lífeyrisréttindi strax jöfnuð milli opinbers og almenns markaðar en jöfnun launa hefur enn ekki komist til framkvæmda.
Fundurinn er sammála um að undirbúin verði ótímabundin verkföll í ákveðnum fjölda framhaldsskóla og að atkvæðagreiðslur um verkfallsaðgerðir fari fram um leið og friðarskyldu lýkur ef samningar hafa ekki tekist þá.
17. janúar 2025 – Fundur trúnaðarmanna FF