Trúnaðarmenn hvöttu viðræðunefndina áfram

Stór hópur trúnaðarmanna í Kennarafélagi Reykjavíkur gekk fylktu liði í Karphúsið í dag. Tilefnið var að lýsa fullum stuðningi við störf viðræðunefndar KÍ.
Viðræðunefnd KÍ fékk óvænta heimsókn í Karphúsið í dag. Voru komnir um fimmtíu trúnaðarmenn og félagar í Kennarafélagi Reykjavíkur. Baráttugleði og kraftur einkenndi heimsóknina.
Samningafundur hófst klukkan 13 en viðræðunefndin gaf sér tíma til að hitta kennarahópinn.
Kristín Björnsdóttir, formaður KFR, fór fyrir hópnum og ávarpaði viðræðunefndina með þeim orðum að fullur stuðningur væri við kröfur kennara í yfirstandandi viðræðum. „Við stöndum með ykkur alla leið," sagði Kristín og uppskar mikið lófatak viðstaddra.
Þá kom kennarahópurinn færandi hendi. Viðræðunefndinni voru færðir nýir bolir með áletruninni 68 Eldey og Siglufjörður 383. Er þar vísað til orða Magnúsar Þórs Jónssonar, í Kastljósi 30. janúar síðastliðinn, þegar hann notaði landakort til að lýsa stöðu launakjara kennara. Magnús sagði að líta mætti svo á að kennarar væru í raun staddir í Eldey, sem er staðsett um 13 kílómetra úti fyrir Reykjanesi. Ef takast ætti að færa kennara til jafns við sambærilega sérfræðinga í launakjörum þá væri ferðinnin heitið beint til Siglufjarðar.
Viðræðunefndin tók við bolunum og þakkaði kærlega stuðninginn.