Tröllalagið

Lagið er algerlega frá heimasvæði skólans og er eftir kennara skólans, Birnu Þorsteinsdóttur.
Tónlistarskóli Borgarfjarðar birti þetta frábæra lag á vefnum, Tröllalagið. Lagið er algerlega frá heimasvæði skólans og er eftir kennara skólans, Birnu Þorsteinsdóttur. Ljóðið er eftir Sigríði Jónsdóttur sem bjó í Borgarnesi (móður Birnu og Theodóru). Sigríður Ásta Olgeirsdóttir sá um leikstjórn og kvikmyndatöku og tónlistarstjóri er Theodóra Þorsteinsdóttir.
Við Tónlistarskóla Borgarfjarðar hefur verið í nokkur ár söngleikjadeild starfandi við skólann. Börnin í söngleikjadeildinni í vetur eru 6-12 ára. Æfð hafa verið upp atriði úr söngleikjum og síðan hafa verið sýningar í desember og að vori. Þar sem ekki var hægt að hafa sýningu núna fyrir jólin fékk Sigríður Ásta þá hugmynd að gera kvikmynd.
