Tónlistin í aðalhlutverki í Skólanum okkar í kvöld
Fréttir|7. mars 2017

Fjallað verður um fjölbreytt og metnaðarfullt starf tónlistarskólanna í Skólanum okkar, 4. þætti, sem verður sýndur klukkan 20.30 á Hringbraut í kvöld.
Í þættinum er farið á æfingu í Söngskólanum í Reykjavík þar sem nemendur setja upp Töfraflautu Mozarts. Þá er Brekkubæjarskóli á Akranesi heimsóttur en þar halda tveir öflugir tónmenntakennarar úti kraftmikilli tónlistarkennslu.
Rætt er við Garðar Cortes, skólastjóra og stofnanda Söngskólans í Reykjavík, og Chrissi Guðmundsdóttur, tónlistarkennara við Tónlistarskóla Rangæinga, um mikilvægi tónlistarkennslu og það öfluga starf sem fram fer í tónlistarskólum landsins.
Ekki missa af áhugaverðum þætti á Hringbraut.