Tónlistarskólar á höfuðborgarsvæðinu í Netnótunni
Fréttir|21. júní 2021

Annar þáttur NETnótunnar 2021 var frumsýndur á sjónvarpsstöðinni N4 í gærkvöld.
Netnótuveislan hélt áfram í gærkvöld þegar annar þáttur af þremur var sýndur á norðlensku sjónvarpsstöðinni N4. Efniviður frá 15 tónlistarskólum á höfuðborgarsvæðinu var sýndur í þættinum.
Alls sendu um 50 tónlistarskólar myndbönd í NETnótuna 2021 og eins og gefur að skilja er ekki hægt að sýna nema brot í sjónvarpsþáttunum þremur. Myndbönd skólanna eru því birt hér að neðan í heild. Ekki einasta er að finna í myndböndunum frábæran tónlistarflutning heldur einnig ýmis konar fróðleik um starfsemi skólanna.
Þriðji og síðasti þáttur NETnótunnar verður sýndur næstkomandi þriðjudagskvöld.
Hægt er að horfa á sjónvarpsþættina hér: