Tónlistarskólakennurum boðið á tónleika
Steinunn Birna Ragnarsdóttir hefur boðið félagsmönnum FT og nemendum þeirra á tónleika Nelson Goerners í Norðurljósum Hörpu sem haldnir verða klukkan sunnudaginn 2. nóvember næstkomandi klukkan 20:00. Þetta kemur fram í bréfi sem Steinunn sendi Sigrúnu Grendal, formanni FT í morgun en það hljóðar svona:
Veit ekki hvort hægt er að segja til hamingju með daginn því tilefni verkfalls er langt í frá ánægjulegt, en alla vega getið þið verið stolt af vel heppnaðri baráttu sem skilar vonandi árangri sem allra fyrst.
Það er kannski ekki margt sem ég get gert, en þó get ég boðið öllum tónlistarkennurum og nemendum á tónleika Nelson Goerners í Norðurljósum 2. nóvember kl 20.00 á meðan húsrúm leyfir.
Bið þig að senda boðið áfram á kennara og nemendur svo upplýsingarnar komist örugglega til skila ef þú ert með póstlista svo hægt sé að senda út boðsbréfið. Hver og einn getur fengið einn miða án endurgjalds (sjá nánari upplýsingar hér).
Nelson Goerner er sigurvegari Lisztkeppninnar og einn af eftirsóttustu píanistum samtímans. Það er því mjög gaman að geta deilt þessum tónleikum með tónlistarkennurum til að auðga andann og líta upp úr verkfallsönnum eina kvöldstund.
Ég óska ykkur öllum góðs gengis og sendi mínar allra bestu baráttukveðjur.
Bestu kveðjur/best regards,
Steinunn Birna Ragnarsdóttir
Tónlistarstjóri/Music Director
354-528-5008
www.harpa.is