Tónlistarskólakennarar vísa kjaradeilu til sáttasemjara

Fréttir|12. júní 2014

Félag tónlistarskólakennara vísaði kjaradeilu sinni við Samband íslenskra sveitarfélaga til Ríkissáttasemjara fyrr í dag. Kjaraviðræður félagsins við Samband íslenskra sveitarfélaga hafa staðið yfir síðan í desember á síðasta ári en þá undirrituðu samningsaðilar viðræðuáætlun. 

Kjarasamningar samningsaðila runnu út 31. janúar á þessu ári og haldnir hafa verið fimm samningafundir frá því í desember 2013.