Tónlistarskólakennarar unnu mál fyrir Félagsdómi

Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) hafði betur gegn Sambandi íslenskra sveitarfélaga í máli er varðar röðun í starfsheiti og rétt til viðbótarlauna í krafti viðbótarmenntunar.
Félagsdómur hefur fallist á kröfu FT er kemur að túlkun á því hvaða félagsmenn eiga að raðast í starfsheitið tónlistarskólakennari III. Ágreiningur hefur verið uppi milli FT annars vegar og Sambands íslenskra sveitarfélaga hins vegar um hvernig beri að raða í fyrrgreint starfsheiti. Þá var deilt um ákvæði er varðar viðbótarlaun vegna menntunar.
Málið var dómtekið í Félagsdómi 1. mars síðastliðinn og féll dómur fyrr í þessari viku. Félagsdómur fellst, sem fyrr segir, á sjónarmið FT í öllum meginatriðum.
Dómsorð Félagsdóms hljóðar svo:
„Viðurkennt er með dómi Félagsdóms að félagsmenn stefnanda, sem eiga rétt á röðun sem tónlistarskólakennari III samkvæmt skýringu við grein 1.3.1 í kjarasamningi aðila sem gildir frá 1. september 2020, á þeim grundvelli að þeir hafi lokið einleikaraprófi, burtfararprófi frá viðurkenndum tónlistarskóla eða hlotið samsvarandi menntun, eða hafa verið ráðnir í Sinfóníuhljómsveit Íslands eða sambærilegar atvinnuhljómsveitir að undangengnu prufuspili fyrir 1. desember 2018, allt að uppfylltum forsendum sem koma fram í bókun 4 með sama kjarasamningi, eigi rétt á þeirri röðun frá 1. september 2020, og viðbótarlaunum vegna framhaldsmenntunar, samkvæmt grein 1.3.3, fyrir hvert fullt námsár, eins og þar er nánar kveðið á um.“
Sigrún Grendal, formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, segir gott að búið sé að skera úr málinu. „Við erum fegin að málið hefur verið til lykta leitt í Félagsdómi og að fallist var á okkar sjónarmið.“
Sambandi íslenskra sveitarfélaga var gert að greiða FT 600 þúsund krónur í málskostnað. Gísli Guðni Hall hrl. flutti málið fyrir hönd FT.