Tónlistarskólakennarar skrifa undir kjarasamning

Samninganefndir Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) og Sambands íslenskra sveitarfélaga undirrituðu nýjan kjarasamning sín á milli með rafrænum hætti í dag
Nýr kjarasamningur Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) og Sambands íslenskra sveitarfélaga var undirritaður með rafrænum hætti síðdegis í dag. Gildistími hins nýja kjarasamnings er 1. janúar 2022 til 31. mars 2023. Fyrri kjarasamningur aðila rann út þann 31. desember síðastliðinn.
Nýi kjarasamningurinn fer nú í kynningu meðal félagsmanna FT og hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga en niðurstaða atkvæðagreiðslu um samninginn skal liggja fyrir þann 21. janúar 2022.
Atkvæðagreiðsla hefst klukkan 11 mánudaginn 17. janúar og lýkur klukkan 14 fimmtudaginn 20. janúar 2022.
Boðið verður upp á þrjá kynningarfundi
- Föstudaginn 14. janúar kl. 11:30-12:30 Ýtið hér til að fara á fundinn
- Mánudaginn 17. janúar kl. 10:00-11:00 Ýtið hér til að fara á fundinn
- Þriðjudaginn 18. janúar kl. 11:00-12:00 Ýtið hér til að fara á fundinn