Tónlistarskólakennarar senda kveðju

Fréttir|9. september 2014

Fyrir hönd tónlistarskólakennara og skólastjórnenda tónlistarskóla sendi samninganefnd Félags tónlistarskólakennara kveðju inn á málþing Sambands íslenskra sveitarfélaga um skólamál. Málþingið bar yfirskriftina „Hvað fékkstu á prófinu?“ og fór fram á Grand hóteli Reykjavík í gær. 

Fundarstjóri kom kveðjunni á framfæri við málþingsgesti og var kveðjan í formi bréfs látin liggja frammi. 

Kveðjan hljóðaði svo: 

Kveðja frá tónlistarskólakennurum og skólastjórnendum tónlistarskóla um land allt

Um leið og við óskum ykkur góðs gengis á málþingi Sambandsins um skólamál til eflingar menntunar á Íslandi sendum við þinginu eftirfarandi hvatningu: Gagnvirkni menntunar, menningar og mennsku, er leiðandi afl í þróun okkar samfélagsgerðar þar sem manngildið er í forgrunni sjálfbærrar hugsunar. Íslenskt samfélag getur verið stolt af metnaðarfullri nýrri menntastefnu mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

Áherslur færast nær mennskunni og því að efla manneðlið í heild sinni. Að þessu leyti samtvinnast menntastefnan menningunni með ríkari hætti en fyrr.

Samhliða því að samfélagið verður fjölbreytilegra, flóknara og margslungnara er útvíkkun á skilgreiningu menntakerfisins óhjákvæmileg, til dæmis í þeirri merkingu hverjir hafa þar hlutverki að gegna og bera ábyrgð á menntun þjóðfélagsþegnanna. Við stöndum frammi fyrir þeirri áskorun að horfa á þróun menntunar með heildstæðari hætti.

Í stefnumörkun UNESCO er bent á nauðsyn þess að unnið sé að því að lista- og menningarstofnanir, fjölmiðlar, iðnaðurinn og einkaaðilar taki virkan þátt í menntun. Vísað er til mikilvægis þess að mótuð sé stefna í list- og verkmenningu sem undirstriki samband milli samfélags og menntunar.

Með því að fella saman nýja menntastefnu og okkar ríkulegu menningarstefnu höfum við í höndunum áhrifaríkt tæki, listir og menningu, til innleiðingar hugmyndafræði nýrrar menntastefnu.

Við stöndum á krossgötum sem kalla á samlegð allra hagsmunaaðila. Aukin samræða og samstarf er vegvísir nýrra tíma. Tónlistarkennarar og skólastjórnendur tónlistarskóla vilja leggja sitt af mörkum til eflingar skapandi skólastarfs og innleiðingar nýrrar menntastefnu. 

Við vekjum athygli á því að tónlistarskólakennarar og stjórnendur tónlistarskóla hafa verið samningslausir í sjö mánuði. Þeir eru einu félagsmenn stéttarfélagsins Kennarasamband Íslands sem eftir á að semja við. 

Samband íslenskra sveitarfélaga er hvatt til að ganga frá kjarasamningum við Félag tónlistarskólakennara þegar í stað.