Tónlistarskólakennarar samþykktu kjarasamning
Fréttir|20. janúar 2022

Nýr kjarasamningur Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) var samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða.
Úrslit í allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna í Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum um nýjan kjarasamning félagsins liggur fyrir. Tónlistarskólakennarar samþykktu hinn nýja samning með miklum meirihluta atkvæða. Kjörsókn var 54 prósent.
Skrifað var undir kjarasamning FT og Sambands íslenskra sveitarfélaga 11. janúar síðastliðinn.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar er þessi
- Já sögðu 190 eða 72,52%
- Nei sögðu 56 eða 21,37%
- Auðir 16 eða 6,11%
- Á kjörskrá voru 481
- Atkvæði greiddu 262 eða 54.47%
Atkvæðagreiðslan hófst mánudaginn 17. janúar og lauk klukkan 14 í dag, fimmtudaginn 20. janúar.
Gildistími hins nýja kjarasamnings er 1. janúar 2022 til 31. mars 2023.