Tónlistarskólakennarar samþykkja samning
Fréttir|19. desember 2023

Samkomulag um framlengingu kjarasamnings hefur verið samþykkt í allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna í FT.
Yfirgnæfandi meirihluti félagsmanna í Félagi kennara og stjórneda í tónlistarskólum (FT) hefur samþykkt nýgert samkomulag sem felur í sér framlengingu kjarasamnings.
Samninganefndir FT og Sambandsins skrifuðu undir samkomulagið 14. desember síðastliðinn. Kynningarfundir fóru fram í kjölfarið.
Atkvæðagreiðsla um samkomulagið hófst á hádegi 15. desember og lauk á slaginu klukkan tólf í dag.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar
- Á kjörskrá voru 480
- Atkvæði greiddu 236 eða 49,17%
- Já sögðu 214 eða 90,68%
- Nei sögðu 15 eða 6,36%
- Auðir voru 7 eða 2,97%
Gildistími hins framlengda kjarasamnings er frá 1. apríl 2023 til 31. maí 2024.