Tónlistarskólakennarar samþykkja nýjan kjarasamning
Fréttir|8. desember 2014
Félagar í Félagi tónlistarskólakennara hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga. Allsherjaratkvæðagreiðsla um samninginn hófst 3. desember og lauk klukkan 12 í dag, 8. desember.
Úrslit atkvæðagreiðslunnar eru svohljóðandi:
- Á kjörskrá voru 530
- Atkvæði greiddu 360 eða 67,92%
- Já sögðu 293 eða 81,39%
- Nei sögðu 42 eða 11,67%
- Auðir 25 eða 6,94%
Kjarasamningur FT og Sambandsins var undirritaður í húsakynnum Ríkissáttasemjara að morgni 25. nóvember síðastliðinn. Þá hafði verkfall tónlistarskólakennara staðið í nærfellt fimm vikur. Samningurinn gildir frá 1. nóvember 2014 til 31. október 2015. Hægt er að kynna sér samninginn hér.