Tónlistarskólakennarar samþykkja boðun um vinnustöðvun

Fréttir|6. október 2014

Yfirgnæfandi meirihluti félagsmanna í Félagi tónlistarskólakennara (FT) hefur samþykkt að efna til vinnustöðvunar 22. október næstkomandi hafi ekki náðst kjarasamningur við Samband íslenskra sveitarfélaga.

Allsherjaratkvæðagreiðsla fór fram meðal félagsmanna KÍ í Félagi tónlistarskólakennara sem starfa hjá tónlistarskólum sem sveitarfélög starfrækja og hjá tónlistarskólum sem eru í einkaeigu eða teljast sjálfseignarstofnanir. Atkvæðagreiðslan hófst síðastliðinn þriðjudag, 30. september, og lauk klukkan 14 í dag, 6. október.

Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar eru sem hér segir:

  • Á kjörskrá voru 506
  • Atkvæði greiddu 392 eða 77,5%
  • Já sögðu 368 eða 93,88%
  • Nei sögðu 22 eða 5,61%
  • Auðir 2 eða 0,51%

Samningaviðræður hafa staðið yfir í nærfellt tíu mánuði en kjaradeilunni var vísað til Ríkissáttasemjara 12. júní síðastliðinn. Félag tónlistarskólakennara er eina aðildarfélag KÍ sem ekki hefur lokið gerð kjarasamnings við Samband íslenskra sveitarfélaga á árinu.