Tónlistarskólakennarar hafa skrifað undir kjarasamning

Fréttir|10. desember 2020

Kjarasamningurinn gildir frá 1. september 2020 til 31. desember 2021.

Samninganefnd Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum skrifaði undir kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga miðvikudagskvöldið 9. desember.

Kjarasamningurinn, sem gildir frá 1. september 2020 til 31. desember 2021, verður kynntur félagsmönnum FT og borinn undir atkvæði. Atkvæðagreiðsla hefst föstudaginn 11. desember kl. 13:00 og lýkur henni þriðjudaginn 15. desember kl. 14:00. 

 

Kjarasamningurinn.

Kynningarfundir á Teams föstudaginn 11. desember kl. 10 og kl. 12 og mánudaginn 14. desember kl. 10 og kl. 12.

Atkvæðagreiðsla hefst föstudaginn 11. desember kl. 13:00 og lýkur henni þriðjudaginn 15. desember kl. 14:00.