Tónlistarnám grundvallarréttur allra barna

Þegar Inga Björk Ingadóttir heyrði um músíkmeðferð vissi hún að það yrði sinn starfsvettvangur. Inga, sem er tónsmiður, píanóleikari og rekur músíkmeðferðarstöðina Hljómu, hefur haft áhuga á manneskjunni frá því hún man eftir sér, hvernig hún virkar og hvernig fólk virkar hvert með öðru. Svava Jónsdóttir ræddi við Ingu Björk.
Tónlistar-Ingan hefur verið þarna frá því ég man eftir mér. Ég elskaði að syngja og hreyfa mig og mér fannst allt sem hljómaði vera alveg ótrúlega heillandi. Mér hefur líka alltaf fundist auðveldast að tjá mig með tónlistinni og vera ég sjálf þegar ég er í henni,“ segir Inga Björk Ingadóttir, tónlistarmaður og eigandi músík-meðferðarstöðvarinnar Hljómu og sérkennari við Tónlistarskóla Kópavogs og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.
Hún segir að tónlistarskólaferillinn hafi verið klassískur - hún fór fyrst í forskóla og svo í hljóðfæranám. „Það var píanó heima hjá ömmu minni og afa sem ég elskaði að spila á þegar ég var lítil, svo píanóið varð fyrir valinu. Tónlistin var alltaf stór partur af lífi mínu og tilveru. Ég söng mikið og var snemma farin að semja tónlist, ljóð og texta - allt frá því ég var í leikskóla. Ég hlustaði á alla tónlist sem ég komst í; gufuna í útvarpinu hjá ömmu og afa og plötusafn pabba heima fyrir. Seinna fóru allir vasapeningar beinustu leið í geisladiskakaup.“
Mér hefur alltaf fundist tónlistin vera svo ótrúlega frábær leið til að tjá mig, segja það sem manni býr í hjarta og til að lýsa heiminum og lífinu. Það er einhver magnaður töfrakraftur sem ég hef alltaf fundið fyrir í tónlistinni.
Tölvutónlist frábær viðbót við klassíska námið
Rúmlega tvítug lauk Inga burtfararprófi í píanóleik frá Tónlistarskóla Kópavogs. „Þá var núverandi húsnæði tónlistarskólans nýbyggt og ég var ein af fyrstu nemendunum sem héldu burtfararprófstónleika í Salnum. Það var gaman að ljúka þessu langa hljóðfæranámi með sólótónleikum með verkum frá ýmsum tímabilum tónlistarsögunnar.“
Fyrir utan spilatíma í píanóleik og hinar ýmsu hliðargreinar sem fylgja tónlistarnámi, eins og tónfræði og tónheyrn, heillaði tónver tónlistarskólans Ingu Björk og þar lærði hún tölvutónlist. „Það var frábær viðbót við klassíska píanónámið þar sem skapandi hliðin mín og grúskarinn fengu að leika lausum hala.“
„Við vorum breiður og skemmtilegur hópur fólks á öllum aldri saman kominn og köfuðum ofan í möguleika tölvutónlistar og tónsmíða fyrir tölvur. Ég fléttaði mikið af söng og textum inn í tónsmíðar mínar og átti skemmtileg móment með frumsamið verk mitt í Óðrík Algaulu sem var keppni í MH fyrir frumsamda tónlist,“ segir Inga Björk sem stundaði námið við tónlistarskólann meðfram námi á tónlistarbraut sem og sálfræðibraut Menntaskólans við Hamrahlíð.
„Í MH var mikil tónlist af alls konar toga, kórinn, hljómsveitir og sólóistar og bara mjög skapandi umhverfi heilt yfir. Þetta var þess vegna mjög örvandi og skemmtilegt umhverfi að vera í.“

Lögmál músíkmeðferðarinnar og eðli bjóða upp á óendanlega möguleika til uppbyggilegrar og styrkjandi vegferðar með hverjum og einum - og engin tvö meðferðarferli eru eins
Óendanlegir möguleikar í músíkmeðferðinni
Inga Björk var 14 ára þegar hún heyrði fyrst af faginu músíkmeðferð. Hún vissi strax þá að það yrði hennar fag og starfsvettvangur.
„Eftir burtfararprófið flutti ég til Berlínar og fór í nám í músíkmeðferð. Þar naut ég þess mjög að sökkva mér enn frekar ofan í eiginleika tónlistarinnar og læra að handleika þau fjölmörgu verkfæri sem í henni er að finna. Ég starfaði í kjölfarið sem músíkmeðferðarfræðingur á ólíkum stofnunum í Berlín í tengslum við líknandi meðferð á sjúkrahúsi sérhæfðu í krabbameinslækningum, í leikskóla, á grunnskólastigi með börnum og ungmennum með ýmiss konar áskoranir og svo vann ég með fjölfötluðu ungu fólki.“
„Það voru margir Íslendingar við nám í Berlín á þessum tíma og fléttaðist saman skemmtilegur hópur af fólki í tónlistarnámi og öðru listnámi, bæði frá Íslandi og öðrum löndum. Borgin var auðvitað líka iðandi af lífi og list; það var tónlist af öllum gerðum í öðru hverju húsi og ég kynntist þar nýjum hljóðheimi. Í skólafríum var ég svo ýmist í Þýskalandi að vinna eða kom heim að anda að mér íslenska sumrinu og fuglasöngnum.“
Inga Björk flutti svo ásamt fjölskyldu sinni til Íslands árið 2011. „Þá hafði ég gengið með Hljómu í maganum í þónokkurn tíma og starfsemin hófst svo árið 2014 í Hafnarfirðinum. Í Hljómu sinni ég músíkmeðferð skjólstæðinga minna, sem eru einna helst börn og ungmenni. Þegar ég flutti aftur heim til Íslands hafði ég meðferðis nokkuð stórt safn af sérsmíðuðum hljóðfærum til músíkmeðferðar.“
Í stuttu máli notumst við músíkmeðferðarfræðingar sem sagt við grunneiginleika tónlistarinnar í meðferðinni
„Lögmál músíkmeðferðarinnar og eðli bjóða upp á óendanlega möguleika til uppbyggilegrar og styrkjandi vegferðar með hverjum og einum - og engin tvö meðferðarferli eru eins,“ segir Inga. „Hljóðfærin, þar með talin söngröddin, leiða ferlið. Þau eru hreyfð og við hreyfum okkur, tónlistin hreyfir við okkur og við öndum í tónlistinni. Svo eru ótal gerðir af samskiptum og tjáskiptum mögulegar í tengslum við tónlistina. Hún er bara ótrúlega öflugt tæki til að vinna með svo marga þætti; hugræna, tilfinningalega og líkamlega.
Þeir geta til dæmis tengst styrkleikum hvers og eins, tilfinningum og úrvinnslu þeirra, félagslegum þáttum og þróað leiðir til tjáningar, samhæfingar, slök-unar og örvunar svo fátt eitt sé nefnt.“
„Það hefur verið sýnt og sannað hvaða jákvæðu áhrif tónlistariðkun hefur á svo marga þætti. Ég hef tekið á móti mjög fjölbreyttum hópi skjólstæðinga í Hljómu og hver og einn einstaklingur kemur með nýja leið, sína eigin leið, og lendur að kanna sem gerir starfið svo spennandi og litríkt.“
Tónlistin á að leika stærra hlutverk í menntun
Fyrir utan starfið í Hljómu bættist við fyrir nokkrum árum áhugavert hlutastarf þegar Inga Björk fór að sinna sérkennslu og ráðgjöf í Tónlistarskóla Kópavogs og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.
„Ég hafði þá barist fyrir réttindum barna til tónlistarnáms vegna þess að þó að tónlistarskólinn sem slíkur hafi gefið sig út fyrir að vera opinn öllum þá var hann það alls ekki. Nemendur með einhvers konar áskoranir gátu ekki endilega gengið að því vísu að geta stundað tónlistarnám. Þó að gífurleg reynsla búi hjá tónlistarkennurum er ekki sjálfgefið að hljóðfærakennari geti sinnt nemanda með einhvers konar áskoranir. Fagþekking hefur heldur ekki verið til staðar svo þessir nemendur hafa ýmist ekki skilað sér í tónlistarskólana eða hætt eftir stuttan tíma, til dæmis bara ef þeir hafa ekki þrifist í hópkennslu í forskólanum eða í hefðbundinni uppbyggingu hljóðfæranáms.“
Ég er sannfærð um að það slær tónlistarhjarta í okkur öllum
„En nú er þetta loksins að breytast sem er afar gleðilegt og löngu tímabært. Mér finnst nefnilega að tónlistarnám sé grundvallarréttur allra barna. Og í raun ætti tónlistin að eiga miklu ríkari sess í námi barna almennt. Ég er sannfærð um að það slær tónlistarhjarta í okkur öllum. Og tónlistin getur verið svo gefandi vegur og kærkomið athvarf í áskorunum lífsins og því að vera manneskja. Starf mitt sem músíkmeðferðarfræðingur er svo ótrúlega fjölbreytt og gefandi. Skjólstæðingar mínir eru svo ólíkir og engin tvö meðferðarferli eru eins.“
Býr til landslag úr tónum og textum
Fyrir utan fyrrnefnd störf fær tónlistarkonan í Ingu Björk líka að njóta sín og búa til hljóðheim og landslag úr tónum og textum, eins og hún orðar það. „Svo nördast ég sjálf í upptökum á mínum hraða eins langt og ég kemst og nýt svo handbragðs frábærra kollega í framhaldinu. Auk fjölda smáskífa hef ég gefið út tvær breiðskífur með eigin efni. Sú fyrsta, Rómur, kom út árið 2018 og er með lögum mínum fyrir lýru og söng. Barnaplatan mín, Blær og stilla, kom svo út árið 2021 en þar leik ég á ýmis hljóðfæri úr safni Hljómu,“ segir hún.
„Svo er ótrúlega gefandi að detta inn í samstarfsævintýri inn á milli með ólíku listafólki hérlendis og erlendis. Ég vann þriggja laga smáskífu með kvikmyndatónskáldinu Alexander Bornstein og hin ofurfæra kvikmyndagerðarkona Margrét Seema Takyar gerði mynd-band við eitt laganna. Svo skrifaði ég tónlist við barnabók Christinu Rauh Fishburne. Síðan hef ég unnið tónlist meðal annars með Haraldi V. Sveinbjörnssyni, Matthíasi Hemstock og Fríðu Dís,“ bætir Inga við að lokum.

Inga Björk fyrir framan músíkmeðferðarstöð sína, Hljómu. Mynd/Sigurjón Pétursson