Tónlistarmiðstöð sett á laggirnar

Fréttir|17. ágúst 2023

„Miðstöðinni er ætlað stórt hlutverk við uppbyggingu öflugs tónlistariðnaðar á Íslandi", segir Sigrún Grendal, formaður FT og stjórnarmeðlimur hinnar nýju Tónlistarmiðstöðvar.

Stofnfundur Tónlistarmiðstöðvar í Hörpu fór fram í gær. Með stofnun Tónlistarmiðstöðvar er stigið stórt skref í áttina að því að veita listgreininni aukið vægi og til að greiða leið íslensks tónlistarfólks, innan lands sem utan, segir á vef Stjórnarráðsins.

Stjórn miðstöðvarinnar var kynnt á fundinum en hana skipa Einar Bárðarson formaður, Ásmundur Jónsson, Guðrún Björk Bjarnadóttir, Gunnar Hrafnsson, Páll Ragnar Pálsson, Sólrún Sumarliðadóttir og Sigrún Grendal, formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, en FT er einn af stofnaðilum Tónlistarmiðstöðvar.

„Þetta eru spennandi tímar og ég er full eftirvæntingar að takast á hendur við þau verkefni sem bíða stjórnar Tónlistarmiðstöðvar við að móta starfsemi Tónlistarmiðstöðvar sem hreyfiafl til góðs fyrir íslenskan tónlistariðnað," sagði Sigrún Grendal í tilefni af deginum. 

Einstaklega mikilvægur áfangi

Á viðburðinum í Hörpu tóku meðal annars til máls Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra, Steindór Dan Jensen formaður bráðabirgðastjórnar og Einar Bárðarson nýr stjórnarformaður Tónlistarmiðstöðvar. Einnig ávarpaði Jakob Frímann Magnússon gesti fyrir hönd starfshópsins sem vann að nýsamþykktri tónlistarstefnu og stofnun Tónlistarmiðstöðvar.

„Þetta er mikill gleðidagur og einstaklega mikilvægur áfangi fyrir tónlist og tónlistarfólk hér á landi. Þetta er löngu tímabært skref sem mun styrkja tónlistargeirann til framtíðar. Tónlistarmiðstöðin getur orðið einn af hornsteinum tónlistarlífs og -iðnaðar og það er mín von og trú að tónlistarsenan hér á landi muni blómstra sem aldrei fyrr,“ sagði menningar- og viðskiptaráðherra í Hörpu í gær. 

„Hún Lilja Dögg á heiður skilið fyrir þá heildarsýn og þann heildarramma sem hefur verið mótaður á sviði tónlistar og fyrir að hrinda í framkvæmd stofnun Tónlistarmiðstöðvar sem ætlað er stórt hlutverk við uppbyggingu öflugs tónlistariðnaðar á Íslandi“, segir Sigrún Grendal, formaður FT. 

Sigrún Grendal, formaður FT, skrifar undir samning um stofnun Tónlistarmiðstöðvar.

„Okkar öfluga tónlistarlíf hefur ekki orðið til í tómarúmi heldur er það ein af afurðum þess nets tónlistarskóla sem okkur bar gæfa til að byggja upp hringinn í kringum landið á síðustu öld,“ segir Sigrún Grendal, formaður FT.

„Ég fagna því sérstaklega að ráðherra veitti brautargengi þeim sjónarmiðum félagsins, að Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum ætti svo sannarlega erindi meðal stofnaðila Tónlistarmiðstöðvar,“ bætir Sigrún við.

„Í því felst mikilvæg viðurkenning á starfsemi tónlistarskóla sem burðarstoð kröftugs tónlistarlífs og tónlistariðnaðar, okkar öfluga tónlistarlíf hefur ekki orðið til í tómarúmi heldur er það ein af afurðum þess nets tónlistarskóla sem okkur bar gæfa til að byggja upp hringinn í kringum landið á síðustu öld.“

Hornsteinn íslensks tónlistarlífs

Tónlistarmiðstöð er stofnuð með það að markmiði að verða einn af hornsteinum íslensks tónlistarlífs og -iðnaðar, segir á vef Stjórnarráðsins. Á árunum 2023-2025 er ráðgert að samtals 600 milljónir renni af fjárlögum til stofnunar Tónlistarmiðstöðvar og til eflingar sjóða tónlistar til viðbótar við þau framlög sem renna nú þegar til tónlistar.

„Tónlistarmiðstöð er afrakstur samstarfs tónlistargeirans og ráðuneytisins og byggir á tillögum grasrótarinnar. Með góðu samstarfi má svo sannarlega hrinda stórum hugmyndum í framkvæmd á tiltölulega skömmum tíma,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir ráðherra meðal annars í ávarpi sínu í gær.

Tónlistarmiðstöðin mun bæði sinna fræðslu og stuðningi við tónlistarfólk og tónlistartengd fyrirtæki, styðja við uppbyggingu tónlistariðnaðarins, kynna íslenska tónlist og tónlistarfólk á erlendri grundu og vera nótnaveita fyrir íslensk tónverk. Tónlistarmiðstöð mun styðja við uppbyggingu sprota og hlúa að ferli listafólks og verður áhersla lögð á að tryggja fjölbreytni og grósku og að starfsumhverfið verði nútímalegt og hvetjandi fyrir íslenskt tónlistarlíf.

Þetta er löngu tímabært skref sem mun styrkja tónlistargeirann til framtíðar

Um Tónlistarmiðstöð

Tónlistarmiðstöð starfar samkvæmt nýjum tónlistarlögum, nr. 33/2023. Tónlistarmiðstöð er sjálfseignarstofnun sem rekin er á einkaréttarlegum grunni með sjálfstæðri fjárhagsábyrgð og starfar samkvæmt sérstakri skipulagsskrá sem stjórn setur og staðfestir.

Stofnaðilar og stjórn

Stofnaðilar Tónlistarmiðstöðvar eru STEF, Félag hljómplötuframleiðenda, Félag íslenskra hljómlistarmanna, Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Tónskáldafélag Íslands auk menningar- og viðskiptaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs, sem öll eiga fulltrúa í stjórninni. 

Stjórnina skipa Einar Bárðarson formaður, Ásmundur Jónsson, Guðrún Björk Bjarnadóttir, Gunnar Hrafnsson, Páll Ragnar Pálsson, Sólrún Sumarliðadóttir og Sigrún Grendal, formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, en FT er einn af stofnaðilum Tónlistarmiðstöðvar.

Varamenn í stjórn verða Arna Kristín Einarsdóttir, Baldur Þórir Guðmundsson, Sölvi Blöndal, Bragi Valdimar Skúlason, Margrét Eir Hönnudóttir, Bergrún Snæbjörnsdóttir og Aron Örn Óskarsson.

Stór og styrkur undirbúningshópur

Ný stjórn Tónlistarmiðstöðvar tók við af bráðabirgðastjórn. Hana skipuðu Steindór Dan Jensen, Guðrún Björk Bjarnadóttir, Gunnar Hrafnsson, Páll Ragnar Pálsson og Sigrún Grendal. 

Starfshópinn sem vann að undirbúningi stofnunar Tónlistarmiðstöðvar skipuðu Jakob Frímann Magnússon, Baldur Þórir Guðmundsson, Bragi Valdimar Skúlason, Bryndís Jónatansdóttir, Eiður Arnarsson, Gunnar Hrafnsson, María Rut Reynisdóttir, Sólrún Sumarliðadóttir og Valgerður Guðrún Halldórsdóttir.