Tónlistarkennslan breyttist á einni nóttu

Fréttir|5. maí 2020

Aron Örn Óskarsson, deildarstjóri í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, segir frá starfi sínu sem tónlistarskólakennara á tímum COVID-19.

Fjöldatakmarkanir og samkomubann höfðu mikil áhrif á tónlistarkennslu hér á landi. Nánast á einni nóttu var tónlistarnáminu vippað yfir á rafrænt form. 

Þetta var mikil áskorun, segir Aron Örn Óskarsson, deildarstjóri í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, en hann er viðmælandi í myndbandaröð KÍ um COVID-19 og skólastarf. 

Aron segir það hafa verið gott fyrir skólana að vera ýtt út í hið nýja ástand. „Ég held að fjarkennslan komi aldrei í staðinn fyrir tímana en ég held hún geti gagnast okkur með fram náminu og þannig verið öflugt stoðtæki," segir Aron. 

 

Horfið á myndbandið hér. 


 

Grunnskólinn á morgun

Á morgun verður þriðja myndbandið birt en þar segir Sandra Jónasdóttir, grunnskólakennari í Hofsstaðaskóla, frá fyrirkomulagi kennslu og nýjum áskorunum síðustu vikurnar.