Tónlistarkennarar minna á kröfur sínar
Félagar í Félagi tónlistarskólakennara ætla í dag og á morgun að minna á stöðuna í kjarabaráttu sinni. Í dag eru skipulögð mótmæli á Austurvelli og er dagskrá sem hér segir:
16:15 Mæting hjá Hörpu og kröfuspjöldum dreift á þátttakendur.
16:30 Lagt af stað frá Hörpu að Austurvelli. Sungin verða 2 lög. Nýr texti við 'Glory, Glory Halelujah' og 'Ég vil elska mitt land'. Fyrir þá sem vilja taka undir má finna texta laganna hér.
Á morgun þriðjudag, hyggjast tónlistarkennarar heimsækja Ráðhús Reykjavíkur, afhenda borgarstjóra ályktun og fjölmenna á pallana. Dagskráin er einföld eða sem hér segir:
13:15 Mæting á Austurvelli þar sem fundarmenn taka upp trjáfánann og kröfuspjöld. Í kjölfarið verður gengið fylktu liði í áttina að Ráðhúsinu. Hægt er að sjá nánari upplýsingar um viðburðinn hér: