Tónlistarkennarar í LHÍ lýsa stuðningi við baráttu FT
Tónlistarkennarar í Listaháskóla Íslands lýsa fullum stuðningi við baráttu tónlistarskólakennara fyrir bættum kjörum. Tónlistarkennarar í LHÍ sendu frá sér yfirlýsingu þessa efnis í morgun. Þar segir meðal annars að tónlistarlíf Íslendinga sé á hraðri uppleið og það sé að stærstum hluta að þakka góðu tónlistarskólakerfi.
Yfirlýsingin er svohljóðandi:
Tónlistardeild Listaháskóla Íslands lýsir fullum stuðningi við kjarabaráttu tónlistarkennara og kröfum þeirra um sanngjarnar leiðréttingar launa sinna. Verkfall er neyðarúrræði í kjarabaráttu sem bitnar hvað verst á þeim sem síst skyldi, í þessu tilfelli ungum tónlistarnemendum.
Tónlistarlíf Íslendinga er á hraðri uppleið og vekur athygli og aðdáun um heim allan. Það er að stærstum hluta að þakka góðu tónlistarskólakerfi og ekki síst því fórnfúsa starfi sem íslenskir tónlistarkennarar hafa sinnt um árabil. Það sem tekið hefur áratugi að byggja upp tekur aðeins örskamma stund að brjóta niður.
Tónlistardeild LHÍ skorar á viðsemjendur tónlistarkennara að leggja allt kapp á að samningar takist sem allra fyrst svo ekki þurfi að koma til verkfalls.
Fyrir hönd tónlistarkennara í LHÍ,
Tryggvi M. Baldvinsson, deildarforseti tónlistardeildar.