Tónlistarkennaranám í LHÍ án skólagjalda
Fréttir|8. apríl 2024

Listaháskólinn minnir á umsóknarfrestir fyrir næsta skólaár. Skólagjöld hafa verið felld niður, eins og kunnugt er.
Listaháskólinn hefur kynnt umsóknarfresti fyrir þau sem hyggjast leggja stund á söng- og hljóðfærakennslu á hausti komanda. Gert hefur verið kunnugt að frá og með næsta hausti falla skólagjöld niður við skólann og greiða nemendur skrásetningargjöld eins og títt er í öðrum háskólum.
Bakklárnámsleið í tónlistardeild – umsóknarfrestur er 12. apríl
- Klassísk söng- og hljóðfærakennsla, B.Mus.Ed. (180 ECTS) & Rytmísk söng- og hljóðfærakennsla, B.Mus.Ed. (180 ECTS).
- Kennaranámið telst ákjósanlegur undirbúningur meistaranáms í hljóðfærakennslu. Vel menntaðir tónlistarkennarar eru undirstaða áframhaldandi vaxtar tónlistarnáms í samfélaginu til framtíðar litið!
Umsóknarfrestur vegna meistaranáms í söng- og hljóðfærakennslu, M.Mus.Ed. (120 ECTS) er 13. maí
Meistaranám í söng- og hljóðfærakennslu er sniðið að tónlistarskólakerfinu á Íslandi og er námsbrautinni ætlað að mæta menntunarþörf tónlistarkennara sem starfa innan þess eða hafa hug á því!