Tónlist notuð við íslenskukennslu erlendra nemenda

Fréttir|19. apríl 2022

Þráinn Árni Baldvinsson er með mörg járn í eldinum en hann rekur eigin tónlistarskóla og kennir auk þess í nokkrum skólum, svo sem Norðlingaskóla þar sem tónlist er notuð í íslenskukennslu erlendra nemenda. „Við þurfum að geta boðið upp á eins margar kennsluaðferðir og mögulegt er.“

Þráinn Árni Baldvinsson, kennari og tónlistarmaður, stofnaði tónlistarskólann Tónholt fyrir nokkrum árum. „Það er mitt aðalstarf að kenna í Tónholti og við erum fjögur núna sem kennum í skólanum. Ég vinn fyrir Norðlingaskóla, held utan um hljómsveitastarfið og aðstoða Vígþór tónmenntakennara en við vinnum mikið saman. Svo er ég með stutt tónlistarnámskeið í leik-, grunn- og framhaldsskólum. Ég heimsæki marga skóla með námskeið og er með fasta Vinafundi á Rauðhóli, Laufskálum og Norðlingaskóla. Ég held utan um hljómsveitina í Borgarholtsskóla en Ásta Laufey, skólameistari í Borgó, hefur verið mjög áhugasöm um að í skólanum sé músík, sem er frábært. Fjölbreytni er mikilvæg í skólunum, og tónlist á að vera í framhaldsskólum líka. Þannig að ég er með mörg járn í eldinum.

Við Erla Guðrún, sérkennari í Norðlingaskóla, stofnuðum Tónabrú. Markmiðið er að ná betur til barna af erlendum uppruna; barna sem tala litla sem enga íslensku. Þetta er í raun bara enn ein kennsluaðferðin og þetta sló í gegn núna og vonandi getum við haldið þessu áfram og dreift hugmyndafræðinni. Aftur kemur orðið fjölbreytni upp. Við þurfum að geta boðið upp á eins margar kennsluaðferðir og mögulegt er,“ segir Þráinn Árni Baldvinsson, kennari við skólann. Hann segir að yngri börnin séu í hóptímum, og þá tvö til fjögur saman, en eldri krakkarnir fái einkatíma.

„Síðan ég byrjaði að kenna tónlist, en ég kenni mest á gítar, hef ég séð að sjálfstraust nemenda minna af erlendum uppruna hefur aukist til muna þegar þeir finna að þeir ná tökum á einhverju sem er jafnalþjóðlegt og tónlist; þá finna þeir að þeir eru ekki öðruvísi en aðrir nemendur. Sjálfstraustið fylgir þeim og þeir eru óhræddari við að takast á við önnur verkefni í skólanum. Þeir vita að þeir geta gert svo mikið þegar þeir hafa náð tökum á til dæmis gítarnum. Barn sem ekki skilur og áttar sig ekki á umhverfinu í skólanum er líklegra til að lenda utangarðs og verða út undan. Þetta verðum við að passa. Ef við getum svo nýtt þetta áfram og leyft nemendum að vinna enn meira með áhugamálin sín þá erum við komin með betra námsumhverfi og mun meiri námshvata hjá nemendum.

Ég held að kennarar eigi að vera leiðbeinendur, vekja áhuga, virkja nemendur í náminu og passa sig að vera ekki fyrir þegar nemendur eru komnir á flug, hver sem flugleiðin er.

Þetta á auðvitað við um alla nemendur. Af hverju fær nemandi sem elskar að teikna ekki aukatíma í myndmennt? Þar lærir hann ekki bara stærðfræði og íslensku og æfir lestur heldur lærir hann líka samskipti á jákvæðum nótum en við sem kennum vitum að ef nemandi hefur áhuga á einhverju þá eru hegðunarvandamálin ekki stórmál. Núna er árið 2022 og við ætlum enn að setja nemendur í að gera 700 blaðsíður af einhverju sem þeir skilja ekki og hafa kannski lítinn sem engan áhuga á. Við verðum að vera opnari fyrir því að kenna á breiðari grundvelli. Krakkar læra nefnilega miklu meiri stærðfræði og íslensku en við höldum þegar þeir eru í tómstundum og vinna í sínum áhugamálum. Við getum gert betur, það vita allir, og við kennarar erum alltaf að reyna að gera betur. Eða það vona ég.“

Þráinn segir að hlutfall erlendra nemenda við skólann sé alltaf að aukast. „Einhvern tímann töldum við löndin sem nemendur í Norðlingaskóla eru frá og það voru þá 36 lönd. Í einum tímanum hjá mér voru fjórar stelpur í 1. og 2. bekk sem allar töluðu mismunandi tungumál og enga íslensku. Þá var frábært að setjast niður með þeim og láta þær fá gítar. Þá voru allar stelpurnar að vinna á sama sviðinu; engin þeirra kunni á gítar og allar voru jafnar. Þetta var frábær hópur og sjálfstraustið hjá þeim öllum óx í hverjum tíma. Ég sýndi þeim hvernig við gætum leikið okkur á gítarinn og þær lærðu lög, afmælissönginn, litalagið og fleiri lög og Erla Guðrún hitti þær svo og fór yfir textann, vann með orðin og fór svo dýpra í málfræðina. Svona unnum við þetta með krökkunum; fyrst fengu þeir tónlistartíma með mér og svo vann Erla áfram með þeim og tengdi yfir í tónlistina.“

Þráinn segir að sumir nemendur hafi ekki talað eitt orð í íslensku þegar þeir hófu nám í skólanum, eins og stelpurnar sem hann nefndi. „Þeir voru farnir að herma eftir mér í lok námskeiðsins, búnir að pikka upp hik-orðin mín og orðin sem ég notaði mest eins og „vel gert“ mjög gott“, „já, já, ok, ok, ok ... flott“ og svo framvegis, og einn hópurinn hló mikið í síðasta tímanum þegar þau tóku fimm mínútur í að gera grín að mér. Það er gaman þegar nemendur eru komnir á þennan stað, þeim líður vel og allir eru glaðir.“


Tónlistarstofan virkar vel

Þráinn segir að þegar kemur að íslenskukennslu erlendra barna í Norðlingaskóla sé almennt lögð áhersla á að styðja við nemendur. „Þetta er aðferð sem hentar sérstaklega vel með yngri börnunum. Eldri nemendur eru aðeins tregari í taumi, en tónlistin kemur þeim öllum svolítið á óvart. Þeir reikna með að íslenskukennslan sé í hefðbundinni kennslustofu; stóll og borð. Þetta umhverfi, tónlistarstofan, virkar vel. Ég held að það sé hægt að nota þessa aðferð alls staðar, svo sem í heimilisfræðistofu og smíðastofu, en reynsla okkar, sem er reyndar ekkert mikil ennþá, er sú að þeim mun fyrr sem við byrjum, það er að segja þeim mun yngri sem börnin eru, þeim mun betur gengur. Unglingadeildin er erfiðari, en ég held að það sé kannski bara eitthvað sem við getum unnið betur með; yngri eintökin voru svo svakalega jákvæð og móttækileg að allar hindranir með eldri krökkunum voru í okkar huga stærri en þær í raun voru.“

Hver eru viðbrögð foreldra barnanna og auðvitað barnanna sjálfra varðandi þessar áherslur í íslenskukennslu?

„Krakkarnir sem eru ekki lengur í Tónabrú koma reglulega upp að mér á göngum skólans og spyrja hvenær þeir fái að mæta aftur til mín og Erlu. Það eru bestu meðmæli sem hægt er að fá. Foreldrar sem við höfum talað við eru allir í skýjunum með þetta. Ég held við þyrftum að vera með foreldrana enn betur innvinklaða í þetta því krakkarnir ræða auðvitað við foreldra sína þegar þeir koma heim. Það er næsta mál á dagskrá hvernig við náum foreldrunum í námið með krökkunum.“

Það er gaman þegar nemendur eru komnir á þennan stað, þeim líður vel og allir eru glaðir

Hvað einkennir Þráin sem kennara? „Umburðarlyndi og þolinmæði. Ég er ekkert betri kennari en aðrir. Ég reyni að leyfa hverjum og einum nemanda að vera eins og hann er og læra á eigin forsendum. Ég held að kennarar eigi að vera leiðbeinendur, vekja áhuga, virkja nemendur í náminu og passa sig að vera ekki fyrir þegar nemendur eru komnir á flug, hver sem flugleiðin er.“

Þráinn veit ekki hvort þessi aðferð sé notuð í öðrum skólum. „Ég hef sent nokkrum kennurum punkta um þetta. Ég hvet alla til að hafa samband við okkur Erlu Guðrúnu, en þetta er aðferð sem vert er að prófa og svo er auðvelt fyrir kennara að aðlaga þetta í sínum skólum. Það er ekkert meitlað í stein í Tónabrú og mikilvægt að sá sem ákveður að kenna með þessari aðferðafræði fái að þróa efnið og setja sitt kennara-DNA í námsefnið. Þetta er ekki bara áhugasvið nemenda heldur kennara líka og þess vegna held ég að allir geti nýtt sér þetta í öllum greinum.“

Í Skálmöld

Þráinn er menntaður kennari. Hann ólst upp fyrir norðan og var í Hafralækjarskóla sem er í Þingeyjarsveit. „Ég var svo heppinn að fá að læra hjá Robert Faulkner en hann byrjaði að kenna tónmennt við skólann þegar ég var í 4. bekk. Hann var mikill áhrifavaldur. Ég lærði á trommur hjá honum og píanó og svo kenndi hann okkur krökkunum að skapa tónlist og vera óhrædd við að búa til hljóð. Hann benti okkur á að tónlistin væri út um allt.

Ég var svo orðinn gítarnörd mjög snemma og fór þá að læra í Tónlistarskóla Húsavíkur hjá Villa gítarkennara og þá varð ekki aftur snúið. Villi er enn einn af mínum uppáhaldskennurum. Ég var líka svo heppinn að ég fékk strax að spila með fólki. Ég var settur í hljómsveitir í skólanum og spilaði með skólakórnum, harmonikkuleikurum og einnig með Paul Weeden þegar ég var 15 ára. Þetta var rosalegur skóli og ég var einhvern veginn bara spilandi með öllum alls staðar.

Svo flutti ég suður tæplega 17 ára og fór í FÍH og var byrjaður að spila í Reykjavík nánast strax. Ég var í ballböndum og spilaði stundum þrisvar til fjórum sinnum í viku þegar mest var.

Skálmöld var svo stofnuð 2009 af nokkrum gömlum þungarokkurum. Við vildum gera eina plötu áður en við dræpumst. Sinna aðaláhugamálinu, sjáðu til. Við erum enn að, búnir að gefa út fimm stúdíóplötur og tvær tónleikaplötur, og erum að fara í tónleikaferðalag um Evrópu í haust sem er búið að fresta tvisvar vegna Covid en vonandi komumst við af stað í nóvember. Eitt gigg í Hörpu verður reyndar í lok október og svo förum við út.“

Þráinn Árni er spurður hvað tónlistin gefi honum. „Tónlistin er allt. Ég byrja að kenna á gítar klukkan hálfníu flesta morgna og kenni stundum til klukkan sjö á kvöldin og svo æfi ég mig oft þegar ég kem heim á kvöldin. Ég hlusta mikið og í kennslunni fær maður hugmyndir frá nemendum þannig að ég hlusta ekki bara á það sem ég hef alltaf hlustað á; það er mikilvægt að fá hugmyndir frá nemendum og það er eitt af því sem ég elska við að kenna en ég læri eitthvað á hverjum degi í kennslunni.“

Hver er draumurinn varðandi tónlistina?

„Ég held ég sé núna að lifa drauminn; hann er að rætast núna. Ég vinn við að spila á gítar og leiðbeina öðrum í tónlist. Ég spila í nokkrum hljómsveitum og mest með vinum mínum í Skálmöld en við semjum tónlist og fáum að ferðast um heiminn að spila tónlistina okkar. Ég er á góðum stað.“

 

Viðtalið birtist í Skólavörðunni, 1. tölublaði 2022