Tónlist er fyrir alla!

Fréttir|8. september 2022

Ráðstefnan Tónlist er fyrir alla hófst í Hörpu í dag með pompi og prakt. Yfir 400 tónlistarkennarar, stjórnendur og aðrir áhugasamir sækja ráðstefnuna.

Ikuzus strengjasveitin gaf tóninn við setningu ráðstefnunnar í morgun. Að því loknu flutti Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra ávarp og við því tóku svo fyrirlestur og umræðutorg um framtíð tónlistarnáms og -kennslu. 

Ráðstefnugestir tóku vel í umfjöllunarefni og atriði morgunsins eins og sjá má á myndum Sigurðar Ó. Sigurðssonar ljósmyndara hér fyrir neðan. 

  • Hér er hægt að kynna sér ráðstefnuna og alla dagskrárliði.

Af nægu að taka

Tónlist er fyrir alla stendur yfir dagana 8. og 9. september í Hörpu. Ráðstefnugestum stendur til boða að taka þátt í ótal dagskrárliðum ráðstefnunnar sem samanstanda af fyrirlestrum og kynningum, workshop, panelumræðum og hópaumræðu. Botninn í ráðstefnuna slær gestafyrirlesarinn Rick Beato, heimsþekktur YouTuber.

Félag kennara og stjórnenda tónlistarskóla stendur fyrir ráðstefnunni sem haldin er í samstarfi við tónlistardeild Listaháskóla Íslands, Samtök tónlistarskólastjóra og Félag íslenskra hljómlistarmanna.