Tónaflóð og tónsköpun á Nótunni 2023

Um 140 tónlistarnemendur munu sameinast í sköpun og frumflutningi tónverks sem mun bera heitið Óður til tónlistar á Nótunni, uppskeruhátíð tónlistarskóla, sem fer fram í Hörpu á sunnudag. Fjölbreytt og áhugaverð tónlistaratriði verða flutt allan daginn og munu um 500 nemendur stíga á svið. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir að koma og njóta tónlistar.
Það verður mikið um dýrðir í Hörpu næstkomandi sunnudag, 19. mars, þegar um fimm hundruð tónlistarnemar, hvaðanæva af landinu, koma saman og flytja tónlist. Hér er að sjálfsögðu rætt um Nótuna – uppskeruhátíð tónlistarskólanna – sem hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem einn af skemmtilegri viðburðum ársins. Nótan fer fram í Hörpu.
Tónlistarflutningur hefst klukkan 11 og stendur til 17. Samspils- og hljómsveitaratriði verða flutt á tvennum tónleikum í Eldborg og spannar dagskráin sannarlega vítt svið en þar má meðal annars finna verk eftir Mozart, Freddie Mercury, Bach, Eurythmics, Rihönnu, Lully, James Brown og Bartok auk frumsaminna verka. Einleiksatriði verða flutt í Hörpuhorni þar sem konsertar munu ráða ríkjum og mun Oliver Kentish, stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar áhugamanna, bjóða heppnum nemendum að koma fram með hljómsveitinni á næsta starfsári.
Óður til tónlistar
Vinnusmiðjur undir listrænni stjórn Sigrúnar Sævarsdóttur-Griffiths verða haldnar og þar munu 140 tónlistarnemar semja verkið Óð til tónlistar. Verkið verður flutt klukkan 16:30 á sunnudag og verður gestum í sal boðið að taka þátt. Óhætt er að fullyrða að þetta verður sögulegur flutningur tónverks.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir að koma og njóta. Krakkar verða leystir út með glaðningi.
Að Nótunni standa Félag kennara og stjórnenda (FT) og Samtök tónlistarskólastjóra.

Tónlistarskólar landsins eru um 90 talsins og um 15.000 nemendur stunda nám innan tónlistarskólakerfisins. Með uppskeruhátíðinni er kastljósinu beint að samfélagi tónlistarskóla og tónlistarnemendum.
