Tölvan sem hljóðfæri og sköpunartól

„Ég kenni raftónlist aðallega í gegnum það að reyna að fá krakkana til að semja sjálf. Þau fá eiginlega algjörlega frjálsar hendur og ég reyni bara að leiðbeina þeim,“ segir Andri Pétur Þrastarson kennari við Tónlistarskóla Ísafjarðar.
Nýbakað rúgbrauð með smjöri beið fulltrúa KÍ á kennarastofunni í Tónlistarskóla Ísafjarðar. Á meðan sendinefndin skoðaði skólann og ræddi við kennara og stjórnendur tók Skólavarðan bakarann tali í kennslustofu hans á annarri hæð þessa sögufræga húss. Andri Pétur Þrastarson, tónlistarkennari og tónlistarmaður, lærði á fiðlu við skólann ungur að aldri og kenndi sjálfum sér á gítar seinna meir. Hann á ekki langt að sækja hæfileikana en faðir hans var einnig gítarkennari og tónlistarmaður.
„Ég er að kenna núna í stofunni sem ég lærði í þegar ég var sjö ára og pabbi var í þeirri stofu líka um tíma,“ segir Andri Pétur. „Þannig að það er mjög heimilislegt að vera í þessari stofu. Ég er búinn að breyta stofunni í fullbúið stúdíó í rauninni. Maður hefur mikið frelsi í stofunni sinni. Ef maður vill hengja upp myndir, eða þá tíu hljóðpanela og innrétta stúdíó, þá má maður líka gera það,“ segir Andri, sem segir andann í Tónlistarskólanum einstaklega góðan.
Nam tónlistartækni í Hollandi
En hvernig hófst kennaraferillinn? „Mér datt aldrei í hug að ég gæti farið að læra einhvers konar tónlist miðað við hvernig framboðið var á Íslandi þá.“ En þá var gerð krafa um að umsækjendur í tónlistarnám á háskólastigi hefðu lokið grunnstigi á hljóðfæri. „Svo endaði ég á að flytja út í leit að námi og þá var þetta nám til sem hét tónlistartækni og þeir bara kenndu manni allt mögulegt,“ útskýrir Andri.
Eftir að hann lauk námi í tónlistartækni frá Listaháskólanum í Utrecht í Hollandi hafði hann samband við Ingunni Ósk Sturludóttur, sem þá var skólastjóri Tónlistarskóla Ísafjarðar, og spurði hvort þau hefðu áhuga á að byrja að bjóða upp á nám í raftónlist. „Hún tók rosa vel í það og spurði hvort ég gæti ekki kennt á gítar líka. Svo er þetta eiginlega búið að vera þannig að ég er aðallega gítarkennari og raftónlistarkennari með,“ segir Andri Pétur.
Mér finnst besta leiðin til þess að þau læri vera að leyfa þeim að prófa sig áfram
Raftónlist allsráðandi
Í raun er nær öll tónlist í dag að hluta til raftónlist, útskýrir Andri. „Ekki nema þú sért að fá tónlistina alveg beint af kúnni, frá lifandi tónlistarmanni.“ Öll tónlist er í dag tekin upp með tölvum og henni breytt með effektum; röddin leiðrétt, taktinum breytt og alls konar.
„Ég kenni raftónlist aðallega í gegnum það að reyna að fá krakkana til að semja sjálf. Þau fá eiginlega algjörlega frjálsar hendur og ég reyni bara að leiðbeina þeim,“ segir Andri Pétur, sem notar forritið Abelton við kennsluna. „Þannig að þau geta verið skapandi og í raun bara notað tölvuna sem hljóðfæri, sem sitt sköpunartól.“
Upphafsreiturinn óskrifað blað
Ólíkt hefðbundnu tónlistarnámi þarf maður í rauninni fyrst að búa til hljóðfærin í raftónlist áður en maður getur byrjað að spila einhvers konar lag, útskýrir Andri. „Ef maður hugsar um forritið sem hljóðfæri, þá byrjar maður alltaf með allt tómt, tabula rasa.“ Þannig að fyrst þarf að byrja á að tína til hluti sem eiga að mynda hljóð, það er að segja, í raun smíða hljóðfærið. Svo er hægt að læra á það og spila.
„Raftónlistin snýst mjög mikið um að leita,“ segir Andri. Í upphafi verkefnis er nemandinn annað hvort að leita að einhverju hljóði sem lætur hugmynd spretta fram, eða nemandinn er þegar með ákveðið hljóð í huga, eða hljóðheim úr ákveðnu lagi, sem hann vill líkja eftir. Þá þarf að finna út hvernig nemandinn getur gert það og greina lagið, finna út úr því úr hverju það er samansett. Þannig byggja þau smátt og smátt upp eigin hljóðheim, segir hann.
Möguleikarnir endalausir
Tölvan er ávallt í forgrunni, en möguleikarnir eru endalausir í raftónlist og ná út fyrir tölvuna. Til dæmis er hægt að tengja hefðbundin hljóðfæri við forritið og taka þau upp. „Það er mjög oft sem nemendur eru að læra á annað hljóðfæri líka, áður en þau koma til mín. Þannig að ef þau kunna eitthvað á píanó þá liggur það beint við að nota hljómborð til að koma hugmyndum inn í tölvuna, eða að tromma inn í tölvuna, ef þau hafa verið á trommum. Það eru til svo margar leiðir að tengja saman og koma hlutunum á sinn stað.“
„Ég var með eina stelpu í námi hjá mér sem var í raun að semja kvikmyndatónlist. Það var mjög skemmtilegt. Svo hef ég fengið til mín krakka sem vilja semja næsta FM957 popp hittara, það er líka mjög gaman. Þannig að maður fær alveg alla flóruna,“ segir Andri Pétur.
„Þau koma mjög oft sjálfum sér á óvart. Maður þarf mest held ég að passa sig á að vera ekki of mikið að stíga inn í. Mér finnst besta leiðin til þess að þau læri vera að leyfa þeim að prófa sig áfram. Leyfa þeim stundum að vera föst á einhverju vandamáli í smá stund áður en maður hjálpar til,“ segir hann. „Maður fær kannski inn nemanda sem spyr hundrað spurninga í upphafi. Svo eftir því sem líður á tímana verða spurningarnar alltaf færri og færri og nemandinn finnur sína eigin leið. Það er svolítið gaman að sjá.“
Sjálfstæði nemenda framtíðin
En er mikill munur á að kenna á hefðbundið hljóðfæri eða raftónlist? „Þegar ég byrjaði að kenna var ég rosa mikið að reyna að vera klassískur kennari og fara eftir bókinni en síðan hef ég alltaf meira og meira bara reynt að nýta það sem ég nota í raftónlistinni og leyfa krökkunum að velja sjálf. Velja lagið, vinna með spuna og láta þau semja sjálf,“ segir Andri.
„Ég held að það sé rosa mikið framtíðin í tónlistarkennsluaðferðum að leyfa þeim að finna sinn veg í tónlistinni. Maður er ekkert endilega að þessu til að þjálfa upp næsta Boccherini eða Hendrix, heldur meira bara til að þau læri að njóta tónlistar. Ég held að það sé algjörlega framtíðin.“
Aðeins um Tónlistarskóla Ísafjarðar
Þetta sögufræga hús við Austurveg á Ísafirði hýsir Tónlistarskóla Ísafjarðar. Húsið, sem var byggt árið 1945 og vígt þremur árum síðar, var upphaflega ætlað Húsmæðraskólanum Ósk. Húsameistarinn var Guðjón Samúelsson og byggingameistari Jón H. Sigmundsson. „Ég hygg að það sé ekki ofmælt, að þetta hús muni vera eitt hið vandaðasta skólahús, sem byggt hefir verið í þessu landi og þótt víðar væri leitað,“ sagði Sigurður Bjarnason, þáverandi forseti bæjarstjórnar við vígsluhátíðina.
Tónlistarskólinn tók til starfa í húsinu árið 1998 og ráðist var í miklar endurbætur. Til að mynda var tónlistarsalurinn Hamrar vígður ári síðar, en hann var teiknaður af Vilhjálmi Hjálmarssyni arkitekt með fulltingi Stefáns Einarssonar hljómburðar-fræðings og byggður við skólahúsið á smekklegan og hugkvæman hátt. Þá hafði Tónlistarskólinn þegar starfað í yfir hálfa öld, en skólinn fagnar nú, árið 2023, 75 ára starfsafmæli.
Upplýsingarnar eru fengnar af vef Tónlistarskóla Ísafjarðar.