Tölum um tækni í skólastarfi

Fréttir|13. nóvember 2018

Laugardaginn 10. október síðastliðinn lauk UTÍS (Upplýsingatækni í skólastarfi á Íslandi), árvissri ráðstefnu á Sauðárkróki um notkun upplýsingatækni í námi og kennslu. Að þessu sinni sóttu ráðstefnuna tæplega 130 kennarar og annað fagfólk. Komust færri að en vildu. UTÍS er eitt af mörgum dæmum um hið gríðarlega þróunarafl sem býr í íslenskum kennurum og frábært dæmi um sjálfsprottna skólaþróun. Kennarar sem sækja ráðstefnuna nýta sér margir starfsþróunarstyrki sína hjá aðildarfélögum Kennarasambandsins.

BYOD á leið út?
Við fyrstu sýn mætti halda að bakslag hafi orðið í notkun tækni í skólastarfi á síðustu vikum og mánuðum. Þeim skólum virðist fjölga mjög sem úthýsa snjalltækjum nemenda. Fréttir af slíku virðast eiga greið upp á pallborðið. Minna fer fyrir því að nánast allir skólar sem banna síma nemenda stefna um leið á stóraukna notkun upplýsingatækni í kennslu.

Þegar grannt er skoðað er alls ekkert bakslag í notkun tækni að eiga sér stað. Það sem hefur gerst er að fólk hefur áttað sig á því að það dugi ekki að börn séu sjálfala þegar kemur að tæknimálum, tæknin hefur öðlast raunhæfari sess í samfélaginu (með kostum sínum og hinum mörgu og augljósu göllum). Krafan um að skólakerfið sinni þessum þætti náms með markvissum hætti er orðin sjálfsagðari. Það má í raun segja að tímabilinu sem kennt er við MET eða BYOD (með eigin tæki / bring your own device) en sú stefna var mikið tíðkuð á fyrstu árum snjalltækjavæðingar ekki síst vegna þess að hún sparaði skólum veruleg fjárútlát.

Fjörutíu ár af tæknifrumkvöðlum
Af einhverjum ástæðum hefur Ísland notið þeirrar gæfu að eignast reglulega tæknifrumkvöðla með brennandi áhuga á menntamálum. Internetið nam að vissu leyti land í grunnskóla á Kópaskeri snemma á níunda áratugnum fyrir tilstuðlan þess merka skólamanns Péturs Þorsteinssonar. Í einum framsæknasta framhaldsskóla landsins situr nú sem skólameistari Lára Stefánsdóttir sem um aldamót fór fremst í flokki þeirra sem nýttu upplýsingatækni í skólastarfi. Ég held að á engan sé hallað ef bent er á Ingva Hrannar Ómarsson sem fremstan meðal jafningja í þeirri snjalltækjabylgju sem nú gengur yfir.

Það er eftirtektarvert að þrír af fremstu leiðtogum okkar í þessum efnum komi allir af landsbyggðunum. Upplýsingatækni er nefnilega samskiptatækni og möguleikar hennar eru þeim mun greinilegri og mikilvægari sem lengra dregur frá fjölmenni.

Að velja sér búsetu
Á leiðinni heim af UTÍS nú um helgina kom ég við í búð á Króknum. Þar hitti ég ungan mann. Þegar hann sá nafnspjaldið sem ég bar um hálsinn gaf hann sig á tal við mig. Í ljós kom að hann var sjálfur mikill áhugamaður um tækni og hafði starfað þar til nýlega við forritun í Reykjavík. Honum ofbuðu þau lífsskilyrði sem bjóðast ungu fólki á Höfuðborgarsvæðinu. Hann kýs því að búa núna fyrir norðan og vinna sem forritari fyrir fyrirtæki fyrir sunnan. Á hverjum morgni fundar hann með samstarfsfólki sínu gegnum netið og síðan vinnur hann að sínum verkefnum á lítilli skrifstofu sem hann hefur komið sér upp. 

Þessi ungi maður er ekkert einsdæmi. Nokkur ríki í Austur-Evrópu hófu markvisst að efla tæknimenntun barna fyrir meira en áratug síðan. Í fyrstu olli það miklum og fyrirsjáanlegum spekileka frá löndunum. Ungir forritarar og frumkvöðlar fluttust til Vestur-Evrópu í leit að tækifærum sem ekki gáfust heima. Þess var þó ekki langt að bíða að margir af þeim bestu sneru aftur heim. Það var fólk sem komið hafði sér í þá stöðu að geta valið sér búsetu. Það kaus að koma heim og lifa þar í vellystingum á launum sem voru miklu hærri en almennt tíðkuðust. Á allra síðustu árum eru þess m.a.s. dæmi að ungt fólk í tæknigeiranum safnist saman í hópa sem ferðast saman um heiminn í blönduðum starfs- og skemmtiferðum.

Á Íslandi eru stór svæði orðin verulega viðkvæm. Við getum ekki endalaust bjargað landshlutum með stóriðju. Það er líka heimskuleg notkun á þeim ríkulegu auðlindum sem við búum yfir. Sem þjóð ættum við auðvitað að nýta okkur ofgnóttina á rafmagni til að taka forystu í upplýsingatækni og umhverfismálum á heimsvísu. Þar skiptir öllu máli hvernig við hlúum að mannauðnum.

Gagnrýnendur tækninnar
Nánast allir tæknifrumkvöðlar sem ég kannast við eru harðir gagnrýnendur tækninnar. Ég ætla að leyfa mér að vera svo djarfur að fullyrða að vald kennara á upplýsingatækni einkennist af þremur þróunarstigum. Á neðsta stiginu er kennarinn upptekinn af göllum tækninnar. Á miðstiginu er hann upptekinn af kostum hennar. Á þriðja, og efsta stiginu, er hann upptekinn af takmörkum tækninnar. 

Í skóla Péturs Þorsteinssonar sátu nemendur ekki við skjái að forrita allan daginn þótt forritun ætti vissulega eftir að reynast mikilvæg. Pétur sá til þess að listamenn eins og Örn Ingi kæmu á staðinn með pensla sína og brúsa til að smita nemendur af listfengi og sköpunarkrafti. Það var í skóla Láru Stefánsdóttur á Ólafsfirði þar sem mér vitandi var fyrst boðið upp á brimbrettasiglingar á skólatíma. Prófið síðan bara að senda Ingva Hrannari tölvupóst. Sjálfvirka svarið sýnir nákvæmlega hvaða augum hann lítur tæknina.

Að alast upp með tækninni 
Íslenska þjóðin hefur þroskast verulega á síðustu þremur til fjórum árum og er að byrja að læra að lifa með tækninni. Þróunin hefur haldið áfram enda hefur tæknin troðið sér inn á nánast öll svið mannlífsins. Sumstaðar fer hún offari. Annarsstaðar er hún guðsgjöf. Hið góða er að viðnám okkar við henni hefur aukist á þeim sviðum þar sem hún er til ama og jafnvel tjóns. 

Fræðimenn við London School of Economics hafa síðustu ár beint sjónum að uppeldi barna í stafrænum heimi. (http://blogs.lse.ac.uk/parenting4digitalfuture/) Nýlega var birt rannsókn sem sýnir að flestir foreldrar eru farnir að innleiða hinn stafræna heim í uppeldi barna sinna. Áherslan er bæði á þau tækifæri sem þar bjóðast og hætturnar. Fleiri foreldrar spila nú tölvuleiki með börnum sínum en fara með þau til kirkju. Flestir foreldrar nota stafræna miðla með börnum sínum á einhvern hátt, án þess þó að vilja vanrækja aðrar leiðir til samskipta. Í morgun þegar ég fylgdi syni mínum í skólann var það síðasta sem hann sagði við mig áður en við kvöddumst: „Getum við svo gert eitthvað saman eftir skóla, pabbi? Kannski farið út að hjóla eða ég kennt þér Fortnite.“

Ísland framarlega eða aftarlega á heimsvísu?
Það er íslensku menntakerfi mikill sómi og styrkur að til hafi orðið jafn stór og öflug sveit fólks sem stendur framarlega í notkun upplýsingatækni og raun er. Ekki munar minna um að við skulum ítrekað eignast fólk eins og Pétur, Láru og Ingva Hrannar.

Lykillinn að velgengni UTÍS felst (eins og ætti ekki að koma neinum á óvart) í því að þar hittist fólk í raun og veru. Fólk deilir reynslu og hugmyndum hvert með öðru og pælir sameiginlega í tækifærum og áskorunum. Flestir snúa af UTÍS fullir innblásturs. Ekki skemmir fyrir að erlendir gestir ráðstefnunnar eru gjarnan í fremstu röð á sínu sviði í heiminum. Þeir koma líka gjarnan auga á styrkleika í íslensku skólakerfi sem við sjálf erum nánast orðin blind á.



Framtíð tæknistarfa, styrkleikar okkar og veikleikar
Við megum búast við breytingu á störfum í tækni á næstu árum og áratugum. Hinni tæknilegu hlið forritunar og smíða verður líklega í auknum mæli útvistað til landa eins og Rúmeníu, Króatíu, Indland og Kína - einfaldlega vegna þess að í þessum ríkjum, og fleirum, hefur kerfisbundið verið unnið að því að ná í slík störf. Það kæmi ekki á óvart að aukið framboð forritara yrði til þess að laun í slíkum störfum muni lækka.

Hinar miklu breytingar sem ganga munu yfir vinnumarkaðinn munu því í auknum mæli snúast um tækifæri til sköpunar nýrra starfa. Því er spáð að þar muni koma til kasta þeirrar framtíðarfærni sem flest ríki okkar heimshluta hafa í óða önn verið að reyna að skilgreina og rækta. Er þar átt við færni til samskipta og samvinnu svo eitthvað sé nefnt. Við höfum séð hvernig tiltölulega einfaldar hugmyndir hafa haft gríðarleg áhrif í hagkerfi heimsins síðasta áratuginn. Forrit eins og Angr Birds, AirBnB, Uber, Snapchat, Instagram og Tinder hafa breytt því hvernig milljarðar manna lifa.

Íslensku námskrárnar eru rýrar þegar kemur að tækninni. Það verður að viðurkennast. Sú skólaþróun sem átt hefur sér stað hér á síðustu árum hefur ekki notið nema takmarkaðs stuðnings af námskrá. Það er á sinn hátt áhyggjuefni. Hinsvegar eru námskrárnar að mörgu leyti bæði nútímalegar og góðar. Með því að hafa grunn þeirra að stoðneti fyrir skólaþróun á næstu árum eru miklir möguleikar á að sinna þeim þáttum afar vel.

#menntaspjall og áskorun
Þegar ég tala við erlenda kollega mína um Twitter fá þeir gjarnan hroll. Twitter er sérlega alræmdur samskiptamiðill, nánast tóm tröllanýlenda. Það er eitthvað við þessi hnitmiðuðu, galopnu samskipti sem hefur tilhneigingu til að súrna. Hér aftur, sker Ísland sig úr. Að minnsta kosti hvað varðar kennaraumræðuna. Umræða undir myllumerkinu #menntaspjall er áberandi góð.

Ég hvet okkur öll til að halda umræðunni áfram. Það liggur fyrir að tækni er komin til að vera sem einn af rauðum þráðum menntunar. Hvernig nýtist hún best? Hver eru takmörk hennar? Notum alla miðla sem á okkar valdi eru til umræðunnar. Gætum þess að hún sé gagnrýnin en um leið valdeflandi. Sprengjum froðubólur og höfum inntakið hugfast.

Ég ætla að enda þennan pistil á áskorun til þeirra kennara nú standa í fararbroddi tækniþróunar í skólastarfi. Ef hver þeirra setur opinberlega fram eina náms- eða kennsluhugmynd þar sem snjöll notkun upplýsingatækni er í fyrirrúmi gæti úr því orðið ómetanlegur forði fyrir okkur öll. Hugmyndina mætti merkja með #menntaspjall svo auðvelt verði fyrir aðra að finna hana.

Hér er mín hugmynd í púkkið:


  • Hrynjandin í ljóðinu Hvarf séra Odds frá Miklabæ minnir á yrkisefnið, þ.e. hest sem hleypur með knapa í ofboði undan einhverju hræðilegu. Vinnum með hrynjandina.
  • Búið til trommutakt sem minnir á hófatak (hér mætti t.d. nota GarageBand eða alvöru ásláttarhljóðfæri) og lesið ljóðið „Hvarf séra Odds frá Miklabæ“ ofan í taktinn. Teiknið mynd/myndir af stemmningunni í ljóðinu og notið myndina/myndirnar og tónverkið til að búa til myndband. Sýnið myndbandið.

Viðbót: Gera mætti veggspjald með texta ljóðsins, mynd/-um og qr-kóða á myndbandið.