Tölum um #leyfisbréf
Eitt af því sem OECD setti fram sem eitt megineinkenni íslensks samfélags í síðustu úttekt sinni á menntamálum var tiltölulega lágt menntunarstig, m.a. vegna þess hve menntun er illa metin til launa. Þetta þykir eftirtektarvert vegna þess að tilhneigingin er víðast hvar mjög eindregið í átt til stóraukinna menntunarkrafna. Á dögunum vakti BHM athygli á þessu sama. Íslenskt atvinnulíf er undarlega lítið móttækilegt fyrir áhrifum háskólamenntunar. Það er ekki auðvelt að segja hvað veldur þessu. Það er örugglega ekki svo að Íslendingar þurfi síður á menntun að halda en aðrar þjóðir. Hér eru einhver önnur öfl að verki.
Í mikilli stefnumótun um kennarastarfið upp úr aldamótum fylgdum við meginstraumnum í þessum efnum. Lenging kennaranáms úr þremur árum í fimm er í fullu samræmi við aðgerðir þeirra þjóða sem við berum okkur gjarnan saman við. Að sumu leyti gengum við jafnvel lengra í kröfum um menntun en sumir aðrir (í orði að minnsta kosti). Þessi breyting hefur ekki gengið alveg hnökralaust. Töluverð tregða er í þjóðfélaginu gagnvart því að aukin menntun kennara sé sjálfsögð. Þá gengur ekki þrautalaust að bæta kjör kennara. Þetta ásamt öðru hefur valdið því að þrátt fyrir fyrirsjáanlegan skort á kennurum hefur aðsókn í kennaranám dalað. Það getur orðið okkur dýrkeypt takist okkur ekki að snúa því við. Þetta held ég við séum öll meðvituð um og í farvatninu eru aðgerðir til að reyna að snúa þróuninni við. Við vonum það besta.
Eitt af því sem kom mér á óvart þegar ég tók við formennsku í Kennarasambandinu var að komast að því að í þrígang hefði á síðasta áratug verið tekin upp vinna við að breyta inntaki leyfisbréfa til kennslu. Enn fremur að fyrir lægi að helstu hagsmunaaðilar hvettu ráðherra til að framkvæma slíkar breytingar hið fyrsta. Þetta kom mér á óvart vegna þess að hin faglega umræða um þessi mál á opnum vettvangi hefur verið afar lítil. Mál sem þessi er mikilvægt að ræða.
Menntamálaráðherra hefur á síðustu mánuðum rætt við forystumenn aðildarfélaga KÍ og aðra um þessi mál á víðum grunni og nokkrir formlegir fundir hafa verið haldnir með helstu hagsmunaaðilum. Út úr þeirri vinnu hefur komið nýstárleg hugmynd um að taka upp eitt leyfisbréf sem spannar öll skólastig.
Þar sem málið hefur hingað til verið á umræðustigi hefur um það ríkt trúnaður. Leyfisbréfamál snerta alla kennarahópa með mjög beinum hætti og á ólíkan hátt.
Stærsti, einstaki veikleiki breytinga á leyfisbréfum er sá að málið er flókið og hefur í áranna rás ekki verið rætt á faglegum nótum í almennum umræðum í skólasamfélaginu. Slík umræða er nauðsynleg og óumflýjanleg.
Innan KÍ eru ýmis sjónarmið til málsins. Andstaða forystu Félags framhaldsskólakennara hefur þegar verið opinberuð. Rökin eru þau að eitt leyfisbréf fæli í sér róttæka kerfisbreytingu sem væri í andstöðu við grundvallarmarkmið laga og reglugerðar um menntun kennara. Önnur aðildarfélög KÍ hafa lýst yfir vilja sínum til að fá að sjá hvernig tillögur um eitt leyfisbréf gætu litið út. Allir formenn hafa lýst yfir áhyggjum af einstökum þáttum málsins. Þeim áhyggjum hefur verið haldið til haga í samtalinu. Ýmsir telja hugmyndina lofa góðu og jafnvel til þess fallna að varða leiðina út úr þeim ógöngum sem málið hefur verið í frá setningu laga um skólastigin frá 2008. Í stjórn Kennarasambandsins er samkomulag um að aðildarfélögin þurfi ekki öll að vera sammála um málið. Við formenn KÍ þess höfum reynt að halda ólíkum skoðunum til haga.
Ég hef hlustað mjög náið á þau sjónarmið sem fram hafa komið. Sú umfjöllun sem hér fer á eftir er endurómur hinnar faglegu umræðu sem fram hefur farið á vettvangi KÍ og annarra hagsmunaaðila um hina stóru drætti málsins.
Þegar málið er skoðað beinast spjótin fljótt að mörkum sérhæfingar og sveigjanleika. Sumpart liggur það á álagsflötum vegna mismunandi hefða og starfshátta á ólíkum skólastigum. En í mjög grófum dráttum telja stuðningsmenn hugmyndarinnar um eitt leyfisbréf að það, að ramma starfssvið kennara inni með mikilli og nákvæmri takmörkun starfsréttinda, geri kerfið stíft, svifaseint og illa búið undir nútímalegt skólastarf. Hægt sé að tryggja með öðrum leiðum að kennarar séu hæfir og kennslan góð. Ekki sé um það að ræða að allir kennarar eigi hér eftir að geta kennt hvað sem er eða að í fyrirkomulaginu felist réttur hvers og eins kennara til hvaða kennslustarfs sem er.
Með einu leyfisbréfi færðist mikil ábyrgð á herðar kennurum og stjórnendum. Kennarar þyrftu að vera meðvitaðir um færni sína, viðhalda henni og auka markvisst við hana. Stjórnendur yrðu að vanda valið við ráðningar og skipulag skólastarfs. Þar fyrir utan fælust gæðatryggingar í kröfum um góða starfshætti, reglum um ráðningar og, mögulega, einhverskonar skilgreindum lágmarkskröfum sem t.d. væri hægt að setja fram í reglugerðum í stað afmarkaðra leyfisbréfa.
Talsmenn þessara viðhorfa benda á að mikill meirihluti íslenskra kennarar starfi í raun nú þegar á nákvæmlega þessum forsendum. Flestir kennarar starfa við hlið annarra kennara með samskonar leyfisbréf þrátt fyrir ólíka sérhæfingu og færni. Þar til frekar nýlega tíðkuðust opin leyfisbréf líka á framhaldsskólastigi.
Á móti þessu viðhorfi benda aðrir á að það sé grundvallarmunur á kennslu mjög ungra barna og nær fullorðins fólks. Þetta séu í raun ólík störf.
Þessu tengt hafa einhverjir áhyggjur af sérkennum skólastiga. Hvaða áhrif hefði mikill sveigjanleiki á mörkum leik- og grunnskóla á stöðu leiksins sem kennsluaðferðar? Þetta er raunar grundvallarspurning sem mikilvægt er að taka upplýsta afstöðu til. Hugsanlega yrðu áhrifin jákvæð, þ.e. að grunnskólinn skipaði þá loks leiknum í þann sess sem hann verðskuldar og leikskólastigið losnaði að einhverju leyti undan þrýstingi um að líkjast grunnskólastigi sem kerfisbundið vanmetur ýmsar mikilvægar kennsluaðferðir. En kannski yrðu áhrifin á hinn veginn.
Mögulega finnst einhverjum annarlegt til þess að hugsa að leikskólakennari kenni nær fullorðnu fólki. Það held ég að sé vitleysa. Ég ræddi þetta stuttlega við kennaranema á Akureyri í gær. Þeim þótti flestum ekkert óeðlileg við það að leikskólakennari tæki að sér kennslu á framhaldsskólastigi í málefnum sem viðkomandi kennari er sérfróður í án þess að bæta við kennsluréttindi sín. Ekki frekar en að þeim þyki óeðlilegt að leikskólakennarar kenni stundum kennaranemum á námskeiðum í háskóla.
Það er samt umhugsunarvert hvert vægi sérhæfingar í uppeldis- og kennslufræði á að vera gagnvart fagþekkingu. Enda kjarni málsins að mörgu leyti.
Þegar þetta er allt haft í huga er ljóst að hugmyndin um eitt leyfisbréf er kannski ekki alveg eins framandi og manni finnst í fyrstu þótt málið sé vissulega flókið.
Einhverjir hafa áhyggjur kennaraskorti í þessu samhengi. Sjá fyrir sér að hugmyndin gangi upp ef stjórnendur geta valið úr hópi hæfra kennara. Það sé bara ekki raunin. Mjög erfitt sé nú þegar að manna ýmsar kennslustöður. Hér mætti nefna sérkennslu, tækni- og raungreinar. Umhugsunarverðara gæti verið að nefna hreinlega íslensku. Háskólanemum í íslensku hefur fækkað mjög mikið síðustu tvo áratugi. Það er byrjað að hafa áhrif á ráðningar íslenskukennara í framhaldsskólum. Aukinn sveigjanleiki og breyttar starfskröfur gætu verið dulbúin leið til að minnka menntunarkröfur.
Þetta er áleitin spurning sem ræða þarf af alvöru. Eitt er þó alveg ljóst í því samhengi: Kennaraskort er aldrei hægt að leysa með því einu að skilgreina kennsluréttindi. Ef íslenskufræðingum heldur áfram að fækka og kennaraskortur fer vaxandi þá duga sérhæfð leyfisbréf ekki til. Langtímalausnin á þeim vanda er að auka áhuga á íslensku (og þar spila inn sjónarmið eins og þau sem Eiríkur Rögnvaldsson hefur haldið fram um samræmd próf og verða efni næsta pistils míns „Tölum um samræmd próf“). Hins vegar vaknar hér athyglisverður angi málsins. Hvað ef íslenskufræðingur er tilbúinn að kenna í skóla en hann skortir kennsluréttindi?
Það er ekki augljóst hvernig svara ætti því.
Kannski mætti ráða leiðbeinanda í tiltekinn tíma gegn því að hann hefji réttindanám á einhverjum tímapunkti. Kannski ættum við að skoða leiðir eins og Svíar hafa sett í framkvæmd þar sem leiðbeinandi má kenna en aðeins á ábyrgð menntaðs kennara, sem undirritar námsmatið.
Meginmarkmið okkar hlýtur auðvitað alltaf að vera það að á öllum skólastigum starfi menntaðir kennarar. Við hljótum líka að gera þá kröfu á stjórnendur að þeir ráði aðeins hæft fólk til starfa og að eftirlit sé með því. Það breytir því þó ekki að varðandi nákvæmlega þennan þátt erum við á dálítið gráu svæði sem hugsa þarf vel. Kannski felst lausn í breyttum samstarfsháttum.
Í samvinnu fagfólks liggur einmitt annar angi málsins. Mjög líklegt er að þverfagleg teymisvinna aukist mjög á næstu árum í öllum skólagerðum. Við munum eftir frétt um að Finnar væru að leggja niður hefðbundnar námsgreinar (sem er auðvitað ekki satt). Nýjar námskrár byggja gjarnan á því að hugsað er um námsgreinar á nýjan hátt. Unnið er út frá hæfniþáttum sem spanna jafnvel margar greinar. Í teymisvinnu er mjög eðlilegt að kennarar vinni saman og hver leggi til sína sérþekkingu og sitt sérsvið. Það er erfitt að sjá hvernig hún ætti að ganga upp í raun ef starfsréttindi eru mjög takmörkuð eða bundin við einstakar greinar.
Fram að þessu hefur málið verið á samræðustigi. Nú er menntamálaráðuneytið að teikna upp hvernig kerfi eins leyfisbréfs gæti litið út. Ég geri ráð fyrir að aðildarfélög muni svo taka afstöðu til þeirra tillagna í endanlegri mynd. Formenn aðildarfélaganna vilja eðlilega sjá hvers konar hugmyndir er um að ræða áður en tekin er formleg afstaða.
Hin almenna umræða mun líka skipta máli. Ég hvet því alla kennara og stjórnendur til að taka þátt í henni. Notum samfélagsmiðlana. Hér mætti til dæmis nota Skólaumbótaspjallið á Facebook eða Twitter. Ræðum málin á kennarastofunni. Veltum þessu fyrir okkur, kostum og göllum. Hægt er að nota #menntaspjall eða #leyfisbréf til að vekja athygli kolleganna á samtalinu.
Umræða um leyfisbréf er aðeins einn þáttur miklu víðtækari faglegrar umræðu. Auknum sveigjanleika fylgja tækifæri en um leið áskoranir. Hvaða áhrif hefði svona breyting á inntak kennaramenntunar og námsval kennaranema? Hvaða áhrif hefði hún á einstök skólastig? Hvaða aðgerðir þyrftu að fylgja svona breytingum til að fyrirbyggja vandræði? Hvernig stæðum við vörð um sérhæfingu? Í hvaða stöðu setti hún kennara sem þegar hafa leyfisbréf?
Drög að hugmyndum munu á næstunni fara í umsagnarferli innan aðildarfélaga Kennarasambandsins og meðal hagsmunaaðila. Fari svo að þessi atlaga að breytingu á leyfisbréfum skili endanlegum tillögum fara þær síðan í opið samráðsferli á næsta ári. Þar mun hver sem er geta skilað athugasemdum sem stjórnvöldum er skylt að svara efnislega.
Sem grundvallarfagstétt í landinu er það hlutverk okkar kennara að leiða umræðuna. Forysta KÍ mun reyna að tryggja að sú umræða verði upplýst og ég mun í samtölum mínum við ráðamenn og hagsmunaaðila halda áfram að koma þeim sjónarmiðum á framfæri sem til mín er beint eða ég verð var við.
Það er eðli hinnar faglegu umræðu að hún er sjaldnast svarthvít. Góð fagleg umræða tæklar grátónana. Það er eðli starfs okkar allra að vera í sífellu að vega og meta kosti og galla. Við gerum það alla daga. Það er ekki alltaf auðvelt að ná fram heildarmyndinni. Þar myndi því hjálpa mikið ef umræðan færi fram á sem breiðustum grunni.
Meginskoðunin innan Kennarasambandsins er sú að afstöðu til málsins sé þá aðeins hægt að taka þegar ljóst er hvernig málið liti út í framkvæmd. Allir sjá rök með og á móti. Allir sjá að málið er snúið. Ýmsir sjá í því mikil tækifæri. Sumir sjá í því ógnanir. Málið hefur ítrekað verið tekið á dagskrá án niðurstöðu. Kannski verðum við ekki öll sammála.
Hvernig sem fer, mun umræðan um mörk sveigjanleika og sérhæfingar þurfa að halda áfram – enda er hún ein rót hinnar stöðugu, almennu umræðu um fagmálefni skólastarfs.