Tólf bjóða sig fram til stjórnar FF

Fréttir|7. janúar 2026
FF Logo RGB An Leturs2

Ellefu framboð bárust um setu í stjórn Félags framhaldsskólakennara og tvö um sæti formanns. Nýtt kjörtímabil stjórnar hefst frá aðalfundi félagsins sem fer fram dagana 19. og 20. mars næstkomandi.

Félagsfólk Félags framhaldsskólakennara (FF) kýs annars vegar um formann og hins vegar um stjórn félagsins í allsherjaratkvæðagreiðslu sem fer fram dagana 26. til 29. janúar og verður kynnt betur innan skamms. Í stjórn sitja, ásamt formanni, fjórir aðalmenn og þrír varamenn.

Ellefu eru í framboði til stjórnar FF: 

  • Anna Jóna Guðmundsdóttir (FB)
  • Arnar Guðmundsson (BHS)
  • Björn Gísli Erlingsson (ME)
  • Daði Guðjónsson (FB)
  • Guðmundur Björgvin Gylfason (FSu)
  • Gunnvör Rósa Eyvindardóttir (MS)
  • Jóhanna Björk Guðjónsdóttir (Kvennó)
  • Sandra Hlín Guðmundsdóttir (BHS)
  • Símon Cramer Larsen (FÁ)
  • Sólrún Geirsdóttir (MÍ)
  • Stefán Svavarsson (MK)

Tveir eru í framboði til formanns FF: 

  • Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara
  • Simon Cramer Larsen, framhaldsskólakennari við Fjölbrautaskólann við Ármúla

Nánari upplýsingar um frambjóðendur verða birtar á kosningavef FF í byrjun næstu viku. 

Framboðsfundur félagsins

Frambjóðendur fá færi á að kynna sig og áherslur sínar á opnum framboðsfundi FF sem fer fram klukkan 20:00, fimmtudaginn 22. janúar í Stórholti, sal Kennarasambands Íslands, í Borgartúni 30. Fundinum verður einnig streymt og upptaka frá honum birt á vef KÍ í kjölfarið. Fundargestum, í sal og í streymi, gefst einnig tækifæri til að leggja spurningar fyrir formannsframbjóðendur á fundinum.

Aðalfundur í mars

Uppstillinganefnd óskaði eftir framboðum til trúnaðarstarfa í lok október. Frestur til að skila inn framboði til stjórnar og formanns rann út á miðnætti aðfaranætur 7. janúar.  Aðalfundur Félags framhaldsskólakennara fer svo fram dagana 19. og 20. mars.

Á aðalfundi fer fram kosning til eftirtalinna trúnaðarstarfa:

  • Samninganefnd FF (5 fulltrúar)
  • Formaður skólamálanefndar FF 
  • Félagslegir skoðunarmenn reikninga, (2 fulltrúar og 1 til vara)
  • Stjórn Vísindasjóðs FF/FS (2 fulltrúar og 1 til vara)
  • Kjörstjórn (3 fulltrúar og 2 til vara)
  • Uppstillingarnefnd (3 fulltrúar og 2 til vara)

Framboðsfrestur til þessara starfa er til klukkan 16:00 fyrri aðalfundardag, 19. mars. Kosningin fer fram þann 20. mars. Framboð og tilnefningar skulu berast sem fyrst til starfsfólks nefndarinnar: Helgu Jóhönnu Baldursdóttur helga@ki.is, Sigrúnar Lilju Guðbjörnsdóttur slilja@msund.is og Ingibjargar Karlsdóttur ingibjorgk@ki.is. Ákjósanlegt er að með framboðum fylgi upplýsingar um vinnustað og mynd.