Tökum forystu!

Það varpar skugga á hátíðisdag okkar kennaranna að enn stöndum við í þrefi um kjaramál. Ósamið er við tvö aðildarfélög Kennarasambandsins og tveir samningar að auki renna bráðum út.
„Þar sem kennarar eru grundvallarforsenda góðrar menntunar ber að valdefla þá, tryggja ráðningu og kjör þeirra sem og hvata í starfi, faglega hæfni og að þeir séu studdir af skilvirku og árangursríku stjórnkerfi sem nægilega vel er fjármagnað.“
- Úr menntastefnu Unesco til ársins 2030
Í dag, fimmta október, er um heim allan minnt á mikilvægi kennara. Aldrei hefur verið ríkulegra tilefni til þess. Nánast öll samfélög heimsins riða á fótunum vegna heimsfaraldur kórónuveirunnar. Afleiðingarnar munu verða langvarandi. Ójöfnuður mun aukast um heim allan og staða stúlkna er víða mjög alvarleg. Á sumum svæðum Afríku er allt að þriðjungur skólabarna horfinn. Í mörgum ríkum löndum hefur aðstöðumunur leitt af sér stórkostlega misskiptingu og þar með ólík tækifæri til náms og tækifæra á grundvelli þjóðfélagsstöðu. Gamalgróin lýðræðisríki loga í ósamlyndi og mótmælum og lýðskrum er á uppleið. Í öllum samfélögum togast á hagsmunir og eftir því sem ástandið varir lengur minnkar virðing fyrir sameiginlegum hagsmunum og vernd hinna veikustu.
Það er við þessar aðstæður sem alþjóðleg samtök kennara senda út herkvaðningu: „Tökum forystu!“ Kallinu er beint til kennara og uppfræðara um heim allan. Tökum forystu á grundvelli þekkingar okkar og stöðu. Kennarar eru mikilvægustu varðmenn mannréttinda í hverju samfélagi. Skólar eru brjóstvörn og brimbrjótur í samfélögum – sérstaklega þegar á móti blæs. Tökum forystu, líka þegar við erum óörugg og óttaslegin.
Áhugaverð könnun á ótta starfsmanna leikskóla við kórónuveiruna, sem kynnt var á Menntakviku fyrir fáum dögum, leiddi í ljós að vanlíðan er mest í hópum yngstu starfsmannanna. Þar á eftir í hópi starfsmanna á sjötugsaldri. Hið síðarnefnda er bæði eðlilegt og rökrétt í ljósi þess sem við er að eiga. Hið fyrrnefnda er meiri ráðgáta – sérstaklega í samfélagi sem bergmálað hefur af yfirlýsingum um meint óttaleysi hinna ungu.
Ég held að skýringin sé þó ekki flókin. Þeir starfsmenn leikskóla sem líður verst eru um leið þeir sem minnst hafa um starf sitt að segja. Þeir hafa ekki hina formlegu stöðu sem eldra fólkið og fagmenntaða hefur til að taka ábyrgð á aðstæðum og umbreyta þeim. Eitt einkenni fagmennskunnar er færnin til að takast á við óvissu. Meðal annars þess vegna þarf ábyrgð að fylgja vald. Þess vegna þurfa kennarar nú að taka forystuna.
Síðustu vikur hafa einkennst af aukinni gremju í samfélaginu. Á sama tíma og nauðsynlegt er að fólk gangi í takt fjölgar í hópum þeirra sem telja taktinn vitlausan. Menningu er att á móti íþróttum; höfuðborgarsvæði gegn landsbyggð. Háværar raddir segja allt of langt gengið á meðan enn hærri raddir telja mikið vanta upp á. Skyndilega eru allir orðnir sérfræðingar í sóttvörnum – svona svipað og það finnst varla kverúlant í íslensku samfélagi sem ekki er sjálfskipaður sérfræðingur í skólamálum.
Ég hef ekki mikið vit á faraldsfræði en mér hefur sýnst að samfélagið búi yfir ágætum sérfræðingum á því sviði. Ég hef hins vegar stundum efast um þekkingu þeirra sem taka sóttvarnarákvarðanir á raunveruleika íslensks skólastarfs.
Það er því fagnaðarefni að Kennarasambandið mun, ásamt menntamálaráðuneytinu og Sambandi íslenskra sveitarfélaga, gera könnun á áhrifum kórónuveirunnar á skólastarf. Við munum leita til kennaranna sjálfra. Tilgangurinn er að fá, milliliðalaust, raunverulega mynd af stöðunni. Þær upplýsingar munu síðan nýtast til þess að sóttvarna- og menntayfirvöld taki upplýstar ákvarðanir í flókinni stöðu. Ákvarðanir stjórnvalda verða vonandi til að styðja við skólastarf í landinu í flóknum aðstæðum.
Það varpar skugga á hátíðisdag okkar kennaranna að enn stöndum við í þrefi um kjaramál. Ósamið er við tvö aðildarfélög Kennarasambandsins og tveir samningar að auki renna bráðum út. Auðvitað er róðurinn víða þungur í samfélaginu en það breytir ekki þeirri staðreynd að hálfkák og hik veldur skaða – og engin hagfræði mælir með öðru en að verja grunnstoðir samfélagsins við aðstæður sem þessar. Ég skora því á viðsemjendur okkar að mæta til leiks af sömu ábyrgðarkennd og einkennt hefur öll störf þeirra sem verið er að semja fyrir. Klárið þessi mál!
Síðustu vikur og mánuðir hafa rist inn að kviku menntunar á Íslandi. Við stöndum frammi fyrir grundvallarspurningum um tilgang skólastarfs. Skólinn er fyrir nemendur. Í skólanum eiga þau skjól. Í skólanum fá þau að þroska færni sína og persónu. Til þess er skólinn og gleymum því ekki. Því miður eru ýmsir í okkar samfélagi glámskyggnir á hið eiginlega hlutverk skóla – og líta á skólana sem einhverskonar útungunarstöð eða færiband ýmissa hagaðila. Þeir sem halda t.d. að skólar séu til fyrir atvinnulífið minna dálítið á Altúngu, kennara Birtíngs, sem taldi það til marks um fullkomleika heimsins hve einstaklega vel nefin væru hönnuð fyrir gleraugu og fætur fyrir skó!
Mig langar að lokum að vitna í hina mætu konu, Jane Goodall, sem var ein þeirra sem ávarpaði stærsta kennarafund sögunnar sem efnt var til með rafrænum hætti vegna dagsins í dag. Hún minnti á mikilvægi sveigjanleikans á farsóttartímum. Með því að auka meðvitað sveigjanleika í störfum sínum geti kennarar eflt sjálfstraust nemenda á kvíðvænlegum tímum. Þá benti hún á mikilvægi þess að staldrað sé við og hlustað á börn og ungmenni – þau fái oft býsna góðar hugmyndir.
Þarna liggur kannski kjarni forystunnar. Þeir hafa eitthvað með hana að gera sem tilbúnir eru að deila henni með öðrum.