Tíu frambjóðendur til þings mæta á opinn fund KÍ

Nú liggur fyrir hvaða frambjóðendur til Alþingis taka þátt í opnum fundi Kennarasambandsins sem verður haldinn þriðjudaginn 19. nóvember. Við hvetjum félagsfólk til að sækja fundinn.
Kennarasambandið efnir til opins fundar um menntamál þriðjudaginn 19. nóvember. Fundurinn fer fram í Skriðu, í húsi Menntavísindasviðs við Stakkahlíð, og stendur frá 17 til 19.
Stjórnmálaflokkar, sem bjóða fram til þings á landsvísu, fengu boð um að senda fulltrúa til fundarins – til þess að ræða skóla- og menntamál og stöðu kennarastéttarinnar.
Þessir frambjóðendur hafa boðað komu sína
- Ásthildur Lóa Þórsdóttir þingmaður fyrir Flokk fólksins
- Ásmundur Einar Daðason, barna- og menntamálaráðherra, fyrir Framsóknarflokkinn
- Bryndís Haraldsdóttir þingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn
- Halldóra Mogensen þingmaður fyrir Pírata
- Hrafnhildur Sigurðardóttir kennari fyrir Lýðræðisflokkinn
- María Pétursdóttir, myndlistarkona og öryrki, fyrir Sósíalistaflokkinn
- Jakob Frímann Magnússon tónlistarmaður fyrir Miðflokkinn
- Svandís Svavarsdóttir, þingmaður og formaður VG, fyrir Vinstri hreyfinguna grænt framboð
- Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður og formaður Viðreisnar, fyrir Viðreisn
- Þórunn Sveinbjarnardóttir þingmaður fyrir Samfylkinguna
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, setur fundinn og annast fundarstjórn.
Við hvetjum félagsfólk til að fjölmenna á fundinn.
Hægt verður að horfa á fundinn á Facebook-síðu KÍ.
*fréttin var uppfærð 19.11 en þá skipti Miðflokkurinn inn öðrum fulltrúa.