Tíu ára afmæli Nótunnar

Uppskeruhátíð tónlistarskólanna, Nótan, fagnar tíu ára afmæli á þessu ári. Til stóð að halda Nótuna á vordögum en af því varð ekki vegna COVID-19. Nú er unnið að Nótu næsta árs.
Nótan – uppskeruhátíð tónlistarskóla var fyrst haldin skólaárið 2009-2010 og fagnar því 10 ára afmæli á þessu ári. Nótan er árlegur viðburður í kerfi tónlistarskóla á Íslandi og skipar stóran sess í hugum nemenda, kennara og áhugafólks um tónlist.
Hátíðin hefur ávallt verið faglega hvetjandi og skemmtilegt innlegg í skólastarfið fyrir alla aðstandendur skólanna jafnt innan veggja þeirra sem utan. Til stóð að halda afmælishátíð í vor þar sem kastljósinu væri beint að samfélagi tónlistarskóla og tónlistarnemendum veittar viðurkenningar fyrir afrakstur vinnu sinnar. Hátíðin átti að vera í Hörpu en af henni varð ekki vegna COVID-19.
Netnóta á næsta ári
Skipulagning Nótunnar 2021 stendur yfir og er undirbúningshópur á fullu að finna leiðir til að skólarnir geti sent inn efni og verður útfærslan á rafrænu formi.
Stefnumiðið er eftir sem áður það sama, þ.e. að styrkja ungt fólk til listsköpunar og að efla listir, menntun og menningu í samfélaginu.
Tónlistarkennarar stóðu frammi fyrir heilmikilli áskorun síðastliðið vor þegar þeir þurftu að færa tónlistar - kennsluna yfir í fjarkennslu og því er bæði táknrænt og framsækið að bregða spegli á starfsemi tónlistarskóla með því að hafa Nótuna í netheimum árið 2021.
Undirbúningshópur er að skoða nánari útfærslur en útgangspunkturinn er að tryggja að öllum skólum verði gert kleift að taka þátt óháð tækniinnviðum. Horft verður til þess að Nótan 2021 geti allt í senn þjónað sem skemmtileg og gagnleg reynsla fyrir nemendur, kynningarátak á starfsemi tónlistar - skóla, þekkingarsköpun og fjárfesting í tækniinnviðum og áhugaverð heimildaröflun um tónlistarskólakerfið á Íslandi.