Tímabært að leiðrétta kjör kennara
Stjórn Kennarasambandsins sendi í dag frá sér eftirfarandi yfirlýsingu vegna úrskurðar kjararáðs 29. október 2016:
Stjórn Kennarasamband Íslands afþakkaði aðild að rammasamkomulagi um launaþróun (SALEK). Ein af ástæðum þess var sú launasetning sem kennurum og stjórnendum var ætluð innan þess ramma.
Stjórn KÍ telur eðlilegt að kennarar og stjórnendur sem og aðrir hópar séu launasettir miðað við menntun og ábyrgð. Stjórn KÍ telur að áður en rammasamkomulag um launaþróun festir sig í sessi á íslenskum vinnumarkaði þurfi að launasetja hópa innan þess ramma.
Nú hefur kjararáð hækkað laun alþingismanna og ráðherra verulega. Í framhaldinu er eðlilegt að launasetning annarra hópa samfélagsins verði leiðrétt til samræmis og þar hafa kennarar verið á rangri hillu sem löngu er tímabært að færa í rétt horf.