Tilslakanir á sóttvörnum í skólastarfi

Fréttir|10. maí 2021

Ný reglugerð tók gildi í dag og er hámarksfjöldi nemenda nú 100 í stað 50 áður.

Slakað var á sóttvarnaráðstöfunum fyrir skólasamfélagið í dag en áfram þarf að gæta fyllstu varkárni. Ný reglugerð heilbrigðisráðherra um takmarkanir á skólastarfi felur í sér eftirfarandi breytingar:

• Hámarksfjöldi fullorðinna í hverju rými verður 50, í stað 20 áður.
• Hámarksfjöldi nemenda í hverju rými í grunn-, framhalds og háskólum verður 100, í stað 50 áður.
• Foreldrar og aðrir aðstandendur mega koma inn í skólabyggingar.
• Blöndun hópa innan sama skóla verður heimil í sundi og íþróttum í grunnskólum.
• Blöndun nemenda milli rýma verður heimil í háskólabyggingum.
• Viðburðir á vettvangi skóla verða heimilaðir, með þeim takmörkunum sem almennt gilda.

Nánari upplýsingar eru á vef heilbrigðisráðuneytisins og einnig má finna upplýsingar um skólastarf hér.