Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna birtar

Markmið verðlaunanna er að auka veg menntaumbóta og vekja athygli á metnaðarfullu skóla- og frístundastarfi.
Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna voru kynntar síðdegis í dag. Það var Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, sem kynnti tilnefningarnar í beinni útsendingu á Rás 2.
Verðlaun verða veitt í þremur aðalflokkum en þeir eru framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur, framúrskarandi kennari og framúrskarandi þróunarverkefni. Að auki verður veitt hvatning til einstaklings, hóps eða samtaka sem stuðlað hafa að menntaumbótum er þykja skara fram úr.
Ráðgert er að veita verðlaunin við hátíðlega athöfn 6. nóvember næstkomandi.
Íslensku menntaverðlaunin voru síðast veitt árið 2012 en þá höfðu þau verið veitt árlega frá árinu 2005.
Að verðlaununum standa Forseti Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneytið, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, Kennarasamband Íslands, Félag um menntarannsóknir, Grunnur, Kennaradeild HA, Listaháskóli Íslands, Menntamálastofnun, Menntavísindasvið HÍ, Miðstöð skólaþróunar við HA, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök áhugafólks um skólaþróun og skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar.
„Það er mér sannur heiður að fá að tilkynna um þessar tilnefningar í dag, á alþjóðadegi kennara. Við þurfum öll að muna eftir mikilvægi kennara og íslensks menntakerfis. Menntakerfið hefur unnið þrekvirki á síðustu misserum, en miðað við hugmyndarflug og fjölbreytni skólastarfs þá kemur það mér ekki á óvart. Við erum ótrúlega öflugt fólk í menntakerfinu og það skiptir sköpum að geta verðlaunað og hrósað fyrir gott og gjöfult starf,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2020
Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur
- Dalskóli fyrir þróun þverfaglegra skapandi kennsluhátta, meðal annars í svokölluðum smiðjum og starfsþróunarverkefni þar sem kennarar rannsaka eigið starf.
- Leikskólinn Rauðhóll fyrir framúrskarandi og fjölbreytt þróunarstarf og nýsköpun, faglegan metnað, starfsþróun og lýðræðislega starfshætti.
- Menntaskólinn á Tröllaskaga fyrir nýjar leiðir í skipulagi náms og kennslu með áherslu á valdeflingu nemenda, frumkvæði, sköpun og áræði.
- Pólski skólinn fyrir mikilvægan stuðning við tvítyngda nemendur og þróun fjölmenningarlegs samfélags á Íslandi, sem og fyrir fjölbreyttar kennsluaðferðir og öfluga starfsþróun.
- Tónskóli Sigursveins fyrir framúrskarandi tónlistarkennslu og framlag til barnamenningar með árvissu samstarfi við rúmlega 30 reykvíska leikskóla.
Framúrskarandi kennari
- Anna Sofia Wahlström, kennari við leikskólann Holt í Reykjanesbæ, fyrir framúrskarandi kennslu og þróunarstarf í tengslum við innlend og alþjóðleg verkefni sem beinast að því að efla skapandi leikskólastarf með áherslu á læsi og lýðræði.
- Birte Harksen, kennari við Heilsuleikskólann Urðarhól í Kópavogi, fyrir framúrskarandi kennslu og frumkvæði við að efla skapandi og leikmiðaða starfshætti í leikskólum með vefsvæðunum Börn og tónlist, Leik að bókum og Stafagaldur.
- Björn J. Sighvatz, kennari á málmsmíða- og vélstjórnarbraut Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, fyrir framúrskarandi kennslu, meðal annars við að hvetja nemendur til dáða og stuðla að góðum námsárangri þeirra.
- Ólöf Ása Benediktsdóttir, kennari við Hrafnagilsskóla, fyrir framúrskarandi árangur við kennslu á unglingastigi, fjölbreyttar kennsluaðferðir og óbilandi trú á hæfni allra nemenda.
Þórunn Elídóttir, kennari við Hamraskóla í Reykjavík, fyrir framúrskarandi árangur í byrjendakennslu, vandaða lestrarkennslu barna í yngstu bekkjum grunnskóla og þróun og miðlun námsefnis í læsi.
Framúrskarandi þróunarverkefni
- Frístundalæsi
Þróunarverkefni sem snýr að eflingu máls og læsis barna í gegnum leik á frístundaheimilum og í tómstundastarfi, meðal annars með útgáfu handbóka fyrir starfsfólk og foreldra ásamt gerð vefseturs með hugmyndum og leiðbeiningum. - Listrænt ákall til náttúrunnar (LÁN): Samtal náttúrufræði og listgreina
Þróunarverkefni þar sem nemendur fjalla um málefni náttúrunnar á skapandi og nýstárlegan hátt með aðferðum list- og verkgreina. Verkefnið byggist á þverfaglegri nálgun þar sem nemendur takast á við álitamál samtímans með gagnrýnu hugarfari. - Smiðjan í skapandi skólastarfi
Þróunarverkefni á unglingastigi í Langholtsskóla í Reykjavík sem beinist að því að auka veg þverfaglegra viðfangsefna með áherslu á sköpun, lykilhæfni og nýtingu upplýsingatækni í námi. - Vistheimt með skólum
Langtímafræðsluverkefni í grunn- og framhaldsskólum um vistheimt (endurheimt náttúrulegra gæða) og mikilvægi hennar fyrir gróður og jarðveg, líffræðilega fjölbreytni og baráttuna við loftslagshamfarir. - Snillitímar í Gerðaskóla
Þróunarverkefni sem beinist að því að efla frumkvæði nemenda í eigin námi með því að gefa þeim kost á að fást við skapandi verkefni á eigin áhugasviði.
Myndatexti með titlum
Efri röð: Þrúður Hjelm, frá Samtökum áhugafólks um skólaþróun, Gerður Kristný skáld, Skúli Helgason, formaður Skóla- og frístundaráðs RVK, Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, Arnór Guðmundsson, forstjóri Menntamálastofnunar og Ragnar Þór Pétursson, formaður KÍ.
Neðri röð: Guðmundur Engilbertsson, formaður Kennaradeildar HA, Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra, Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Kolbrún Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ, og Helgi Arnarson, formaður Grunns, félags fræðslustjóra og stjórnenda skólaskrifstofa.