Tillaga ríkissáttasemjara samþykkt

Kennarasambandið og samninganefndir sveitarfélaga og ríkis hafa komist að samkomulagi um fyrirkomulag vinnu við virðismat á störfum kennara. Ríkissáttasemjari lagði fram tillögu að samkomulagi.
Viðræðunefnd KÍ skrifaði rétt í þessu undir tillögu ríkissáttasemjara um hvernig framhaldi vinnu við virðismat á störfum kennara, sem kveðið er á um í kjarasamningum, verður háttað. Samninganefndir sveitarfélaga og ríkis höfðu fyrr í dag samþykkt tillöguna.
Vinna við virðismat á störfum kennara hefur tekið lengri tíma en áætlað var og hefði niðurstaða átt að liggja fyrir um þessi mánaðamót.
Ríkissáttasemjari kallaði deiluaðila í Karphúsið í dag og stóðu fundir yfir langt fram eftir degi. Tíminn var knappur en á miðnætti í kvöld hefði frestur til að virkja forsenduákvæði í kjarasamningum kennara varðandi gerð virðismats á störfum kennara.
Forsenduákvæðið verður ekki virkjað heldur verður unnið samkvæmt tillögu ríkissáttasemjara. Í tillögunni er útfærsla á því hvernig virðismatsvinnu verður framhaldið.
Nánari upplýsingar um samkomulagið og framhald virðismatsvegferðarinnar verða sendar félagsfólki KÍ í EPLI á mánudag.