Tilkynning frá formanni KÍ

Fréttir|10. september 2021
Pistill

Ragnar Þór Pétursson skrifar pistil til félagsmanna þar sem hann greinir frá ákvörðun sinni að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku í KÍ.

Kæru félagar!

Haustið hefur verið undirlagt af framboðstilkynningum fólks og flokka sem vilja komast til áhrifa á Íslandi. Við stöndum öll frammi fyrir þeirri lýðræðislegu skyldu okkar að greiða götu þeirra sem við teljum hæfust og best til þess fallin að leiða þjóðina áfram úr þeirri erfiðu stöðu sem við höfum verið í. Kennarastéttin er fjölmenn og fjölbreytt og því er eðlilegt að skoðanir séu skiptar í pólitík eins og öðru en ég vona að við munum öll taka þátt í lýðræðinu og beita þeim áhrifum sem við höfum með atkvæðum okkar. 

Nokkru eftir þingkosningar lýkur síðan þeim tíma sem framboðsnefnd Kennarasambands Íslands gaf félagsfólki til að gefa kost á sér til embættis formanns fyrir kjörtímabilið 2022-2026. Það eru því orðin fjögur ár síðan ég gaf kost á mér í embætti þótt enn sé allnokkuð eftir af kjörtímabilinu sem stendur fram að þingi sambandsins í apríl.

Síðustu vikur og mánuði hefur mikill fjöldi fólks innt mig eftir því hvort ég ætli að gefa aftur kost á mér og hvatt mig til þess. Ég er því fólki þakklátur og lofaði að ég gæfi svar þegar skólabyrjun væri yfirstaðin. Fyrr hefðu kennarar um land allt í raun ekki tíma til að velta þessum málum fyrir sér hver sem niðurstaða mín yrði. 

Á sameiginlegum fundi frambjóðenda til formanns haustið 2017 var ég spurður hvað ég myndi gera að fjórum árum liðnum. Hvort freistingin að sitja sem lengst í vel launuðu starfi yrði ekki óviðráðanleg. Svar mitt þá var að ég myndi ekki sitja mínútu lengur í þessu starfi en ég teldi mig þurfa. Ég færi aftur að kenna um leið og ég gæti.

Þegar ég bauð mig fram var staða skólamála mjög viðsjárverð. Áhugalítill menntamálaráðherra hafði tekið við af ráðherra sem taldi það sér til tekna að taka ákvarðanir án samráðs við og í andstöðu við kennarastéttina. Skólaumbótaplágan var orðin sífellt ágengari, stúdentar sniðgengu kennaranám og hagsmunaaðilar réðu ferðinni í stað sérfræðinga. Það var byrjað að molna hratt  undan kennarastéttinni.

Nú, fjórum árum seinna, er staðan nokkuð betri. Menntamálaráðherra hefur sinnt málaflokknum mun betur en forverarnir og af ólíkt meiri virðingu fyrir kennurum. Á mikilvægum stundum hefur ráðherrann staðið með og sett traust sitt á kennara þegar slíkt var alls ekki sjálfsagt. Samband KÍ við helstu hagaðila er miklu sterkara en það var. Samtök kennara hafa í auknum mæli áhrif - og erindi. Búið er að gera mjög nákvæmar og trúverðugar greiningar á mörgum af þeim kerfislægu hindrunum sem gert hafa okkur erfitt um vik að að þróa hér það skólastarf sem við verðskuldum. Á grunni þeirra er verið að hanna lausnir sem margar munu líta dagsins ljós á næstu vikum, mánuðum og misserum. Grundvallarhlutverk kennara sem leiðtoga í lærdómssamfélaginu er búið að lögfesta. Það er lykilatriði. Alþingi hefur loks tekið sameiginlega ábyrgð á menntamálum með sameiginlegri þingsályktunartillögu. Kominn er fjörkippur í kennaranámið og starfsþróun hefur öðlast áður óþekkta og betri umgjörð í nánu samstarfi aðila. 

Ég hef alltaf verið stoltur af því að vera kennari og tel kennarastarfið ekki aðeins gefandi og krefjandi heldur einnig eitt hið göfugasta í samfélaginu. Ég tel að kennarar (og stjórnendur, ég tel stjórnendur með þegar ég tala um kennara) eigi að vera hnarreistir og sjálfsöruggir, kröfuharðir á sjálfa sig og aðra. Frá fyrsta degi langaði mig að draga þessar hliðar starfsins fram við hvert tækifæri sem gæfist. Ég vildi að þau gildi sem ég taldi einkenna kennarastéttina einkenndu málflutning og störf formanns KÍ. Ég vildi sýna kennara í réttu ljósi hvenær sem færi gæfist. Það reyndist auðvelt verk. Öll þjóðin sá hvernig kennarastéttin brást við þeim bráða vanda og miklu ógn sem heimsfaraldur kórónuveirunnar var. Stéttin vakti verðskuldaða athygli langt út fyrir okkar raðir fyrir æðruleysi, fagmennsku og seiglu. Slík stétt þarf ekki talsmenn - hún lætur verkin tala.

Ég var sumsé ákveðinn í því að snúa aftur til kennslu að kjörtímabili loknu. Þegar líða fór á kjörtímabilið áttaði ég mig á því að ég hafði þó ekki gert ráð fyrir sumum þeim þáttum sem komu á endanum til með að skipta mig miklu máli. Ég hef í starfinu notið þeirra forréttinda að starfa með frábæru fólki. Vil ég þar fremsta nefna varaformann Kennarasambandsins, Önnu Maríu Gunnarsdóttur, sem nýtur verðskuldaðrar virðingar langt út fyrir okkar raðir og er einstakur samstarfsfélagi. Þá hefur starfsfólk sambandsins reynst mér gríðarlegur styrkur. Við erum í góðum og öruggum höndum harðduglegs og hæfs fagfólks sem stendur við bakið á stéttinni í blíðu og stríðu. Í Kennarasambandinu, og á vegum þess, starfar gott fólk. Þá hef ég átt einkar gott samstarf við alla okkar helstu samstarfsaðila og þar hef ég fundið raunverulegan meðbyr með og virðingu fyrir kennurum og samtökum þeirra. 

Það var mér því ekkert einfalt mál þegar ég settist niður með sjálfum mér og mat næstu skref. Ég treysti mér að eyða því sem eftir er starfsævinnar með samstarfsfólki mínu og vinna allan tímann að mikilvægum og stöðugum framförum. 

Staðreyndin er samt sú að ég sakna kennslunnar á hverjum einasta degi. Það er annað að tala um kennslu og kennara en að vera kennari og kenna. Kennsla er besta starf í heimi. Ég hef þó reynt að gefa mig allan að hlutverki mínu sem formaður og reynt að standa mig eins vel og ég get. Ég vona að ég hafi gert skyldu mína.

Nýs formanns bíða fjölmörg krefjandi viðfangsefni. Það er nánast fullkomið stefnuleysi í lífeyrismálum eftir misráðnar ákvarðanir stjórnvalda á síðustu misserum. Kennarar búa enn við kerfislægan og ómálefnalegan launamun sem leiðrétta þarf ef ekki á að stefna í óefni og átök. Það á eftir að fylgja eftir þeim stefnum sem búið er að marka og tryggja að framfarir strandi ekki á misheppnaðri innleiðingu eins og svo oft áður. Það er ekkert í höfn þótt ýmislegt hafi þokast í áttina.

Ég verð líka að nefna það sérstaklega að efla þarf lýðræðið í samtökum okkar kennara. Það eru brestir í hinum lýðræðislegu undirstöðum sambandsins sem nýr formaður kemur til með að þurfa að taka þátt í að lagfæra. Hann mun þó aldrei geta það einn. Við erum fjöldahreyfing. Við eigum öll að láta okkur lýðræðið varða og við eigum öll að eiga rödd, hvort sem við erum í embættum eða ekki.

Besta leiðin til að styrkja lýðræðið er að nota það. Því vona ég að öflugt fólk bjóði sig fram til embættis formanns Kennarasambands Íslands. Gefi okkur valkosti. Við vitum að það er enginn hörgull á hæfileika- og hugsjónafólki sem vel er til þess fallið að leiða samtök okkar. Ég hvet ykkur því til að stíga fram og bjóða fram krafta ykkar, framtíðarsýn og hugmyndir. Og ef ekki, að vera dugleg að hvetja rétta fólkið í kringum ykkur til þess.

Það lifa enn margir mánuðir af kjörtímabili mínu með mörgum mikilvægum verkefnum. Ég mun sinna þeim af öllu afli með því frábæra fólki sem ég er svo heppinn að vinna með. Það er margt að gerast eins og þið komið til með að sjá í vetur.

Að lokum vil ég þakka fyrir að hafa fengið að vera formaður ykkar þennan tíma. Það hefur verið mér heiður. Takk fyrir mig!