Tilboð ríkisins nánast móðgun
Fjölmenni mætti í verkfallsmiðstöð FF og FS í Framheimilinu í dag.
Staðan í samningaviðræðum FF og FS við ríkið er í hnút og ekki hefur verið efnt til formlegs fundar í dag. Þetta kom fram í máli þeirra Hönnu Bjargar Vilhjálmsdóttur og Stefáns Andréssonar, sem eiga sæti í samninganefnd FF, í Verkfallsmiðstöðinni í Framheimilinu klukkan tvö í dag.
Hanna Björg sagði tilboð ríkisins sem var lagt fram í gær verra en tilboð frá 12. mars síðastliðnum. „Þannig að við sögðumst ekki reiðubúin í frekari viðræður um vinnutímamat eða nokkurn annan hlut fyrr en við fengjum skárri tíðindi af launaliðnum,“ sagði Hanna Björg og bætti við að samninganefndin gæfi engan afslátt í viðræðunum.
Í máli Stefáns Andréssonar mátti heyra að framlag ríkisins frá í gær hafi verið mikil vonbrigði. „Tilboðið í gær var nánast móðgun og í raun lækkun á tilboði sem lagt var fram 12. mars. Eftir allt sem við vorum búin að gera þá áttum við von á einhverju meira en það var þveröfugt,“ sagði Stefán. Hann sagði mikið þurfa að koma til eigi verkfallið að leysast á næstunni.
Á fjórða hundrað fundarmanna stóðu upp að loknum ræðum Hönnu Bjargar og Stefáns og sýndu samninganefndinni stuðning með standandi lófaklappi í eina mínútu.
Myndband af framsögum þeirra Hönnu Bjargar og Stefáns má sjá hér: