Til stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

Fréttir|22. febrúar 2025

Stjórn KÍ skorar á fulltrúa í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga að greina frá sinni afstöðu til innanhússtillögu ríkissáttasemjara. Það skiptir miklu máli, fyrir alla þá sem deilan snertir, að afstaða fulltrúa sveitarfélaganna sé algerlega ljós. Þetta er meðal þess sem kemur fram í yfirlýsingu sem stjórn Kennarasambands Íslands sendi frá sér í morgun.

Yfirlýsingin í heild

Til stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

Í ljósi ummæla nýkjörins borgarstjóra, Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, um að hún hafi stutt þá innanhússtillögu sem ríkissáttasemjari lagði fram þann 20. febrúar í kjaradeilu sveitarfélaga og KÍ, skorar stjórn Kennarasambands Íslands á aðra fulltrúa í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga að greina frá sinni afstöðu til tillögunnar. Í ljósi þeirrar grafalvarlegu stöðu sem er uppi í kjaradeilunni skiptir það miklu máli, fyrir alla þá sem deilan snertir, að afstaða fulltrúa þeirra sveitarfélaga sem eiga sæti í stjórn Sambandsins sé algerlega ljós. 

Stjórnarmenn í Sambandi íslenskra sveitarfélaga eru: 

Heiða Björg Hilmisdóttir, Reykjavík (studdi tillögu ríkissáttasemjara) 

Einar Þorsteinsson, Reykjavík

Hildur Björnsdóttir, Reykjavík

Rósa Guðbjartsdóttir, Hafnarfirði 

Einar Brandsson, Akranesi 

Nanný Arna Guðmundsdóttir, Ísafirði 

Freyr Antonsson, Dalvíkurbyggð 

Jón Björn Hákonarson, Fjarðabyggð 

Margrét Ólöf A. Sanders, Reykjanesbæ 

Walter Fannar Kristjánsson, Flóahreppi 

Hægt er að senda svar við spurningunni á ki@ki.is eða með því að birta það á opinberum vettvangi.  

Stjórn KÍ lýsir jafnframt yfir vanþóknun sinni á þeim ósannindum sem birtast í yfirlýsingu á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga  þann 21. febrúar. Þar segir m.a.: 

„Stjórn Sambandsins vill því koma því skýrt á framfæri að framsetning innanhússtillögu ríkissáttasemjara var ekki með samþykki stjórnar eða samninganefndar.“ 

Hið rétta er að formaður samninganefndar sveitarfélaga var sammála formanni viðræðunefndar KÍ og ríkissáttasemjara, á fundi sem haldinn var í húsnæði ríkissáttasemjara fimmtudaginn 20. febrúar, um að rétt væri að leggja fyrrnefnda innanhússtillögu fyrir samninganefndir samningsaðila og að svar við henni yrði að berast samdægurs.  

Stjórn KÍ lítur rangfærslur af þessum toga alvarlegum augum. Þær rýra traust milli samningsaðila og ber að leiðrétta tafarlaust. 

22. febrúar, 

Stjórn Kennarasambands Íslands