Til hamingju með hinsegin daga

Fréttir|3. ágúst 2022
Pistill

„Íslenskir skólar hafa á undanförnum árum haft sömu markmið og gildi að leiðarljósi og Hinsegin dagar: Aukið umburðarlyndi gagnvart öllum,“ skrifar Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ.

Þessa dagana standa yfir hátíðahöld í Reykjavík vegna Hinsegin daga. Hátíðar sem fagnar fjölbreytileikanum og litar mannlíf höfuðborgarinnar bæði með menningar- og fræðsluviðburðum. Hátíðar sem er mikilvæg okkur öllum.

Regnbogafáninn, eitt af einkennismerkjum hátíðarinnar, vísar í litróf mannlífsins og það hve ólík við sem manneskjur erum. Við þekkjum öll línuna úr söngtexta sem mun hljóma víða þessa dagana, „Ég er eins og ég er, hvernig á ég að vera eitthvað annað“. Við erum öll jöfn, óháð kyni og kynhneigð, hátíðin minnir okkur á það.

Mitt í gleði hátíðarinnar er að sjálfsögðu alvarlegur undirtónn enda auk þess að einblína á gleðina er hátíðin líka liður í baráttu fyrir mannréttindum hinsegin fólks. Sú barátta hefur vissulega skilað áfangasigrum en það er mjög mikilvægt fyrir okkur öll að átta okkur á því að sú barátta er viðvarandi og kemur okkur öllum við.

Það er með hreinum ólíkindum, en er þó sannarlega raunin, að ákveðið bakslag hefur orðið þegar kemur að viðhorfum til hinsegin fólks og grýla fordóma hefur reist sig upp og gert sig líklega til að hafa hátt.

Við erum öll hinsegin á einhvern hátt

Það er okkar allra að sjá til þess að samfélagið bregðist hart við fordómum, sem meðal annars hafa birst í því að gelt er á hinsegin ungmenni og neikvæðri orðræðu á víðáttum internetsins.

Íslenskir skólar hafa á undanförnum árum haft sömu markmið og gildi að leiðarljósi og Hinsegin dagar: Aukið umburðarlyndi gagnvart öllum. Þar hefur líka farið fram umræða sem vinna á gegn hvers kyns fordómum. Í ljósi stöðunnar er það bjargföst skoðun mín að skólar muni taka það hlutverk enn alvarlegar, enda meðvitaðir um sitt uppeldishlutverk. 

Hins vegar er jafnljóst að við erum öll samábyrg í að vinna gegn fordómum. Þar skiptir kyn, kynhneigð, staða, aldur eða hvað annað einfaldlega engu máli. Í okkar samfélagi á öllum að líða við, allir eiga rétt á sjálfum sér og allir eiga að upplifa gleði í sínu lífi.

Þegar við förum og samfögnum hinsegin samfélaginu á Íslandi, brosum og hlæjum með því skulum við líka muna það hlutverk okkar að berjast fyrir mannréttindum þeirra. Við erum öll hinsegin á einhvern hátt, setningin í laginu góða á við um okkur öll.

Gleðilega Hinsegin daga í Reykjavík!