5. október er alþjóðadagur kennara og er honum fagnað af rúmlega 30 milljónum kennara um allan heim. Alþjóðasamtök kennara (Education International) ákváðu að þema dagsins væri að þessu sinni „Unite for quality education for all“, eða „sameinumst um gæðamenntun til handa öllum“, en þetta hefur einnig verið yfirskrift átaksverkefnis sem staðið hefur allt frá alþjóðadegi kennara 2013. Með þessu vilja kennarar og stjórnendur skóla um allan heim benda á þá staðreynd að jafnrétti til náms er ekki til staðar í heiminum í dag, þrátt fyrir áætlanir Sameinuðu þjóðanna. Þessu vilja Alþjóðasamtök kennara breyta og einnig að Sameinuðu þjóðirnar haldi áfram að vinna í málinu. Tryggja þarf að allir njóti þess sjálfsagða réttar að geta menntað sig óháð efnahag, félagslegri stöðu í samfélaginu eða kyni. Kennarar um allan heim eru hvattir til að senda bréf til aðalritara Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-Moon og hvetja hann til að beita sér í málinu.
Við Íslendingar getum verið stolt af skólakerfi okkar. Það er gott og jafnrétti er til staðar en alltaf má gera betur. Þrátt fyrir niðurskurð til menntamála allt frá efnahagshruninu 2008 hefur tekist að koma í veg fyrir að settar séu hindranir á námsmöguleika ungs fólks. Innihald náms hefur lítið verið skert og framsækin menntastefna sem sett var fram 2008 hefur verið innleidd, þó ekki að fullu. Hins vegar hefur sú samfella milli skólastiga sem hugsuð var með lagasetningunni 2008 ekki náð fram að ganga vegna fyrrgreinds sparnaðar. Framboð á námstilboðum hefur einnig dregist saman, valgreinum í grunnskólum hefur fækkað og nemendahópar hafa stækkað.
Menntastefnan 2008 var unnin í tíð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra í miklu samráði við Kennarasambandið og aðra hagsmunaaðila. Árið 2009 tók Katrín Jakobsdóttir við sem mennta- og menningarmálaráðherra og í hennar tíð var allt gert til að koma hinni nýju stefnu til framkvæmda. Ráðherra tók stöðu með menntun og hafnaði öllum niðurskurði á inntaki náms. Aðhalds var gætt og þó Kennarasambandið hafi ekki alltaf verið sammála forgangsröðun ráðamanna, og meðal annars talið að leggja ætti enn meiri áherslu á menntun árin eftir hrun, náðist að vinna ákveðinn varnarsigur.
Nú hefur Illugi Gunnarson, mennta- og menningarmálaráðherra, sett fram stefnu sína í hvítbók. Áherslurnar eru nú að taka á sig mynd og margt þar vekur með mér ótta. Enn einu sinni kemur sjálfstæðismaður fram með áætlanir um styttingu náms sem í þessu tilfelli mun óhjákvæmilega skerða inntak menntunar. Ég get vissulega tekið undir með Illuga um nauðsyn þess að sem flestir klári nám sitt á tilsettum tíma. Í rauninni er það of stór hópur nemenda sem drollar við nám sitt og lýkur því á mun lengri tíma en almennt er gert ráð fyrir, sem verður til þess að auka kostnað við nám. En þrátt fyrir þetta er íslenski framhaldsskólinn með þeim ódýrustu í heimi. Það staðfesta rannsóknir efnahags- og þróunarstofnunar Evrópu (OECD) ótvírætt.
Ráðherra vill líka minnka brottfall og undir það markmið tek ég. En það mál þarf að skoða miklu betur áður en farið er vinna að einhverjum aðgerðum. Við þurfum sérstaklega að fara í saumana á því hvernig við skráum brottfall. Þegar nemandi skiptir um nám og fer úr einum skóla í annan telst það vera brottfall í öðrum skólanum og nýskráning í hinum. Það þýðir að tölurnar sýna ekki raunverulegt brottfall og þetta þarf að skoða.
Það veldur mér miklum áhyggjum að Kennarasambandið fær ekki beinan aðgang að þeirri vinnu sem hvítbókin kallar á. Einhverjir félagsmenn sambandsins hafa verið kallaðir að þessari vinnu, en ekki í gegnum farveg Kennarasambandsins. Menntamálaráðherra hefur falið verkefnastjórn og verkefnastjórum að handvelja „valinkunna“ einstaklinga til verksins, en Kennarasambandið og aðrir hagsmunaðilar koma að verkinu með því að skipa ráðgjafahópa sem tengjast munu verkinu eftir þörfum verkefnisstjóra. Aðkoma KÍ er því skert sem getur vart talist eðlilegt, því það er nú þannig að Kennarasambandið er einn stærsti hagsmunaðili landsins þegar kemur að menntamálum. Stefna þess í skólamálum er sett á fjölmennu þingi og að gerð hennar koma kennarar á öllum skólastigum. Stefnan er úthugsuð og sett fram út frá mörgum sjónarhornum, og sérstaklega er þar reynt að gætta hagsmuna nemenda. Kennarasambandið leggur mikla áherslu á jafnrétti til náms og að gæði skóla séu áþekk á landsvísu. Það vekur því furðu mína að menntamálaráðherra skuli ekki vilja öflugra samstarf við Kennarasambandið en raun ber vitni.
Ráðuneytið hefur nýverið haldið fleiri en eitt málþing um skólamál og fengið heimsþekkta fyrirlesara til að halda erindi. Skilaboð þeirra eru skýr, yfirvöld eiga að starfa með kennurum, skólastjórnendum og samtökum þeirra. Stjórnvöld eiga að forðast að leggja mælikvarða viðskiptalífs á menntamál, en treysta heldur fagfólkinu til þess að leiða starfið. Þetta er meðal annars það sem Andy Hargreaves hafði fram að færa á nýlegri ráðstefnu sem ráðuneytið átti aðkomu að. Hann sagði jafnframt að ekki væri hægt að ná fram breytingum á skólakerfi nema með samstarfi við þá sem þar störfuðu. En þó menntamálaráðuneytið komi að því að fá þessa sérfræðinga til landsins virðist það lítinn áhuga hafa á að hlusta á það sem þeir hafa fram að færa.
Við Íslendingar eigum góða skóla, frábæra kennara og nokkuð gott skólakerfi. Við viljum gera betur og gera góðan skóla enn betri. Gerum það í samstarfi, búum skólunum betri umgjörð og fjárfestum í menntun. Þannig náum við þeim markmiðum sem sett eru fram á alþjóðadegi kennara. Sameinumst um gæðamenntun til handa öllum.